2. fundur
2. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
15.01.2013
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - Aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - Aðalmaður
- Ragný Þóra Guðjohnsen - Aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
01
Bréf Norræna félagsins varðandi NORDJOBB sumarstörf 2013, dags. 08.01.13.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
02
Bréf sýslumanns varðandi veitingaleyfi fyrir þorrablót á Álftanesi, dags. 10.01.13.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
03
Bréf sýslumanns varðandi veitingaleyfi fyrir þorrablót Stjörnunnar, dags. 10.01.13.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
04
Bréf Kópavogsbæjar varðandi aðalskipulag Kópavogs 2012-2024, dgs. 27.12.12.
<SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: "Times New Roman","serif"; FONT-SIZE: 11pt; mso-fareast-font-family: Calibri; mso-fareast-theme-font: minor-latin; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: EN-US; mso-bidi-language: AR-SA">Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.</SPAN>
06
Minnisblað Inga B. Poulsen varðandi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um misnotkun Sorpu bs. á markaðsráðandi stöðu sinni, dags. 07.01.13.
Bæjarstjóri kynnti málsatvik og greindi frá ákvörðun um að skjóta málinu til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Minnisblaðið lagt fram.
07
Bréf Strætó bs. varðandi bókun stjórnar um hraðvagnakerfi, dags. 09.01.13.
Lagt fram.
08
Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 04.01.-11.01.2013
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 04.01. ? 11.01.13 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna Miðhrauns 20.
09
Bréf Skáksambands Íslands varðandi Skákdag Íslands 2013, dags. 11.01.13.
Bæjarráð vísar bréfinu til ÍTG og íþrótta- og tómstundafulltrúa til afgreiðslu.
10
Bréf SSH varðandi umsögn um friðlýsing Búrfells og Búrfellshrauna og stofnun fólkvangs, dags. 04.01.13.
Í bréfinu kemur fram að friðlýsingamarkmið bæjarins falli vel að markmiðum svæðisskipulagsins og að krefjist ekki breytingar á því. Lagt fram.
11
Hjúkrunarheimili á Sjálandi: Verkstaða 10. janúar 2013.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir verkstöðu framkvæmda við nýtt hjúkrunarheimili á Sjálandi. Lagðar fram og ræddar hugmyndir um merkingar hússins.
12
Íbúakönnun 2012
Bæjarstjóri sagði frá þjónustukönnun Capacent sem gerð er meðal 16 stærstu sveitarfélaga landsins á tímabilinun 15. október ? 29. nóvember 2012. Bæjarstjóri kynnti sérstaka skýrslu sem unnin er fyrir Garðabæ þar sem markmiðið er að kanna ánægju með þjónustu Garðabæjar og gera samanburð þar á við önnur sveitarfélög. Skýrslan verður kynnt íbúum bæjarins, starfsmönnum og tekin til umræðu í fastanefndum bæjarins. Almennt er niðurstaðan sú að íbúar eru ánægðir með þjónustu Garðabæjar.
13
Sorphirða í Garðabæ: Minnisblað bæjarverkfræðings um innleiðingu tveggja-tunnukerfis.
Bæjarverkfræðingur kynnti minnisblað um innleiðingu tveggja tunnukerfis og sagði frá að unnið er að gerð útboðsgagna fyrir tveggja tunnukerfi sem kemur til framkvæmda eftir mitt ár. Umræða var um málið.