Beint í efni

29. fundur

16.07.2013
Bæjarráð Garðabæjar

29. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

16.07.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sturla D Þorsteinsson - varamaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðfinna Björk Kristjánsdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðfinna B. Kristjánsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1307204

01

Bréf stjórnar Reykjanesfólksvangs varðandi framlög til Reykjanesfólkvangs, dags. 15.05.13.

Bæjarráð vísar málinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.

Málsnúmer 1302103

02

Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi málsmeðferð við sameiningu tónlistarskóla Garðabæjar og Álftaness, dags. 08.07.13.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra og felur honum að svara bréfi ráðuneytisins.

Málsnúmer 1110115

03

Bréf Sigurðar Sigurjónssonar hrl. varðandi mótmæli við breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Garðabæjar, dags. 04.07.13.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.

Málsnúmer 1307331

04

Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi nýja reglugerð um framlög vegna þjónustu við fatlað fólk 2013, dags. 08.07.13.

Bæjarráð vísar málinu til fjölskyldusviðs og fjölskylduráðs.

Málsnúmer 1307313

05

Minnisblað forstöðumanns fræðslu- og menningarsviðs varðandi reglur um greiðslur vegna leikskóladvalar utan lögheimilissveitarfélags, dags. 10.07.13.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs fór yfir málið. Málið rætt.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.

Málsnúmer 1307286

06

Bréf Landskerfis bókasafna hf varðandi þjónustusamning við Rekstrarfélag Sarps, dags. 08.07.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1301109

07

Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 5.7.-12.7.2013.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 05.07.2013 til 12.07.2013 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við eftirfarandi byggingar: Dalakur 4, Garðatorg 1 og Holtsvegur 35.

Málsnúmer 1307399

08

Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi þjónustu við hælisleitendur, dags. 10.07.13.

Lagt fram.