Beint í efni

3. fundur

22.01.2013
Bæjarráð Garðabæjar

3. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

22.01.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - Aðalmaður
  • Stefán Snær Konráðsson - Aðalmaður
  • Ragný Þóra Guðjohnsen - Aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Gunnar Einarsson

Dagskrá

Málsnúmer 1301339

01

Bréf NKG Verkefnalausna varðandi beiðni um styrk fyrir Nýsköpunarkeppni grunnskóla 2013, dags. 13.11.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2013.

Málsnúmer 1111186

02

Bréf stjórnar Reykjanesfólkvangs varðandi skipan stjórnar og fjárhag Reykjanesfólkvangs, dags. 15.11.13.

Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.

Málsnúmer 1301417

03

Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um náttúruvernd (heildarlög), 429. mál, dags. 17.01.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1301385

04

Minnisblað Juris vegna kröfulýsingar í sjóð 9, dags. í okt. 2012.

Í ljósi niðurstöðu í sambærilegu máli Reykjavíkurborgar gegn þrotabúi Glitnis og með vísan til sjónarmiða í framlögðu minnisblaði er það skoðun bæjarráðs að ekki verði árangur af frekari aðgerðum í málinu. Ragný Þóra Guðjohnsen situr hjá.

Málsnúmer 1301301

05

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi spjaldtölvunotkun í Álftanesskóla, dags. 09.01.13.

Forstöðumaður fræðslu- og menningasrsviðs gerði grein fyrir spjaldtölvunotkun í Álftanesskóla og upplýsti um að námsefni sem notað er kemur frá Námsgagnastofnun og er á íslensku. Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.

Málsnúmer 1301228

06

Bréf Gámaþjónustunnar hf. (afrit) varðandi endurskoðun á afsláttar- og viðskiptakjörum Sorpu bs. dags. 04.01.12

Lagt fram.

Málsnúmer 1301337

07

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi landsþing sambandsins 2013, dags. 14.01.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1301341

08

Bréf velferðarráðuneytisins varðandi uppreiknuð viðmiðunarfjárhæð við útreikning húsaleigubóta 2013, dags. 14.01.13.

Lagt fram. Umræða var um sérstakar húsaleigubætur en á vegum fjölskyldusviðs er nú unnið að sérstakri úttekt á málinu.

Málsnúmer 1301358

09

Bréf Dyngjunnar varðandi styrk, dags. 09.01.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar fjöldskyldusviðs.

Málsnúmer 1301380

10

Bréf fjármálaeftirlitsins varðandi eftirlitsgjald á útgefendur hlutabréfa og skuldabréfa árið 2013, dags. 15.01.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1301450

11

Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi samþykkta notkun fasteignarinnar Breiðumýri, dags. 10.12.12.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar hverfisstjórnar Álftaness.

Málsnúmer 1301451

12

Bréf sóknarnefndar Garðasóknar varðandi skipulag kirkjugarðsins við Garðakirkju, dags. 11.01.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar.