Beint í efni

45. fundur

20.11.2012
Bæjarráð Garðabæjar

45. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

20.11.2012

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - Aðalmaður
  • Stefán Snær Konráðsson - Aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - Varamaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón E. Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1211219

01

Bréf Nova ehf. varðandi leigu á aðstöðu fyrir fjarskiptabúnað, dags. 01.10.12

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 1210153

02

Bréf Helgu Kristjánsdóttur varðandi námsleyfi, dags. 08.10.12.

Bæjarráð samþykkir að veita bréfritara launað námsleyfi í 4,5 mánuði eins og heimild er til samkvæmt kjarasamninga. Nánari afgreiðslu málsins vísað til forstöðumanns fræðslu- og menningarsviðs. Bæjarstjóri vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu málsins vegna tengsla við bréfritara.

Málsnúmer 1211255

03

Bréf Fjölís varðandi samning vegna ljósritunar á höfundarréttarvörðu efni, dags. 07.11.12.

Í bréfinu er lýst stöðu mála varðandi samningagerð við mennta- og menningarráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga um ljósritun og hliðstæða eftirgerð á höfundaréttavörðu efni. Upplýst var að samningur Garðabæjar og Fjölís um ljósritun o.fl. gildir til ársloka 2013 samkvæmt viðauka frá 10. nóvember 2010.

Málsnúmer 1208528

04

Bréf Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa varðandi friðlýsingu og stofnunar fólksvangs við Maríuhella, dags. 10.11.12.

Í bréfinu er lýst yfir stuðningi við áform um fyrirhugaða stofnun fólkvangs við Maríuhella.

Málsnúmer 1211264

05

Bréf Skipulagsstofnunar varðandi gildi deiliskipulaga sem birtar hafa verið í Stjórnartíðindum árin 2011 og 2012, dags. 09.11.12.

Í bréfinu er vakin athygli á niðurstöðu í úrskurði úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála um ógildingu skipulags sem ekki var auglýst í samræmi við skilyrði um frest í 41. gr. skipulagslaga. Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.

Málsnúmer 1211272

06

Bréf Sorpu varðandi þjónustukönnun á endurvinnslustöðvunum 2012, dags. 12.11.12.

<SPAN style="FONT-FAMILY: "Times New Roman","serif"; FONT-SIZE: 11pt; mso-fareast-font-family: Calibri; mso-fareast-theme-font: minor-latin; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: EN-US; mso-bidi-language: AR-SA">Lagt fram.</SPAN>

Málsnúmer 1211289

07

Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi sóknaráætlanir landshluta, dags. 14.11.12.

Lagt fram.

Málsnúmer 1206034

08

Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi niðurstöður úr vöktun á yfirborðsvatni og strandsjór í Garðabæ í nóv. 2012, dags. 14.11.12.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir málinu og sagði m.a. frá aðgerðum við uppsetningu á nýrri dælu við Hraunvik. Þá gerði bæjarverkfræðingur grein fyrir sérstöku átaki sem unnið hefur verið að við skoðun á yfirfallsrennsli og röngum tengingum í kerfinu. Sérstök vöktun verður vegna málsins í framhaldinu.

Málsnúmer 1211253

09

Bréf samtaka um kvennaathvarf varðandi rekstrarstyrk fyrir árið 2012, dags. í okt. 2012.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013.

Málsnúmer 2009020226

10

Bréf íbúa í hrauninu sunnan núverandi Álftanesvegar varðandi nýjan Álftanesveg, dags. 08.11.12.

Í bréfinu lýsa íbúar yfir stuðningi við framkvæmdir við nýjan Álftanesveg.

Málsnúmer 1211325

11

Bréf Kvennakórs Garðabæjar varðandi styrk, dags. 15.11.12.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013.

Málsnúmer 1211273

12

Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 9.11.-16.11.2012.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 09.11. -16.11.2012 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna eftirfarandi eigna: Bakkaflöt 14, Kauptún 4, Stigprýði 6, Strandvegur 14, Dalprýði 5-7.

Málsnúmer 2010060058

13

Hjúkrunarheimilið á Sjálandi: Verkstaða 15. nóvember 2012.

Lögð fram samantekt THG - arkitekta varðandi verkefnastöðu 15. nóvember 2012.

Málsnúmer 2011040112

14

Samningur við Byggingarsamvinnufélag félags eldri borgara um samstarf við uppbyggingu íbúðabyggðar við Arnarnesvog.

Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1208403

15

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2013.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir niðurstöðum fjárhagsáætlunar með tilliti til viðbóta í rekstri málaflokka er nemur 118,6 mkr miðað við framlagða fjárhagsáætlun. Þá voru lögð fram drög að framkvæmdaáætlun fyrir árið 2013.

Málsnúmer 1211364

16

Hækkun á stofnframlagi Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarstjóri kynnti minnisblað fjármálastjóra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu til stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi lánamál samlagsins. Í minnisblaðinu er lagt til að auka stofnfé um 683 mkr í þeim tilgangi að auka eigið fé SHS samstæðunnar og gera SHS kleift að greiða niður lán, draga úr skuldsetningu og eftir atvikum fjármagna nýja fjárfestingu. Hlutdeild Garðabæjar er 5,55% eða sem nemur 37,8 mkr. Bæjarráð tekur jákvætt í í að auka stofnfé í ofangreindum tilgangi enda verði það samþykkt af öllum aðildarsveitarfélögum.