Beint í efni

32. (1700). fundur

25.08.2015
Bæjarráð Garðabæjar

32. (1700). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

25.08.2015

Kl. 08:00 - 08:35

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1308333

01

Bréf húsfélagsins við Sautjándajúnítorg 5 og 7 varðandi tímabundið leyfi á merkingu bílastæða, dags. 14.08.15.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1508248

02

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi landsfund jafnréttisnefnda sveitarfélaga, dags. 20.08.15.

Málsnúmer 1303894

03

Tillaga um lokun gamla Álftanesvegar.

Bæjarráð samþykkir tillögu um lokun „Gamla Álftanesvegar“ en vísar tillögunni til nánari útfærslu bæjarstjóra vegna aksturs strætó.

María Grétarsdóttir situr hjá.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, leggur fram eftirfarandi tillögu.

„Björt framtíð leggur til að Garðabær ráðist hið fyrsta í viðhald/endurnýjun á Garðavegi sem liggur framhjá íbúðabyggð á Garðaholti og inn í Hafnarfjörð.“

Greinagerð:

Um leið og nýr og verulega endurbættur Álftanesvegur er nú tekinn í notkun, þá stórsér á Garðavegi sem liggur framhjá íbúðabyggð á Garðaholti og inn í Hafnarfjörð. Skemmdir á veginum má að miklu leyti rekja til þess þegar vegurinn var notaður sem hjáleið vegna framkvæmda við nýjan Álftanesveg. Verulega hefur brotnað upp úr malbikinu, sérstaklega til hliðar, svo að á sumum köflum er ekki möguleiki fyrir tvo bíla úr gangstæðri átt að mætast. Fyrir utan augljósa slysahættu þá getur einnig mikið tjón hlotist af hugsanlegum skemmdum og bílaeigendur geta þá átt kröfu á Garðabæ um að bæta það tjón.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til frekari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1508255

04

Bréf Barnaheilla um gjaldfrjálsan grunnskóla, dags. 20.08.15.

Lagt fram og vísað til kynningar í skólanefnd.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1508278

05

Minnisblað skóladeildar um skólamat.

Lagt fram minnisblað skóladeildar varðandi niðurgreiðslu skólamats og framlengingu samnings.

Bæjarráð samþykkir tillögu skóladeildar um að framlengja samning við Skólamat ehf. frá 25. ágúst til 30. júní 2016.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að hækka gjaldskrá skólamáltíða um 5%. Guðrún Elín Herbertsdóttir greiðir atkvæði gegn hækkun á gjaldskrá.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1508080

06

Skýrsla umhverfisstjóra um sumarvinnu ungs fólks 2015.

Bæjarráð lýsir ánægju með greinargóða skýrslu umhverfisstjóra sem sýnir hversu fjölbreytt og mikilvæg störf ungt fólk kemur að yfir sumarmánuðina við hreinsun og umhirðu í bæjarlandinu.

Bæjarráð vísar ábendingum í skýrslunni til frekari skoðunar við undirbúning sumarstarfa ungmenna á árinu 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1508292

07

Bréf Bjartrar framtíðar um tillögur á verklagi við fjárhagsáætlun og kynjaða hagstjórn. dags. 20.08.15.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirbúa innleiðingu á kynjaðri hagstjórn og fjárhagsáætlunargerð. Áætlun um innleiðingarferli skal lögð fram samhliða framlagningu á helstu forsendum, markmiðum og römmum fjárhagsáætlunar 2016. (2016-2019).

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1508293

08

Bréf Bjartrar framtíðar um móttöku flóttamanna, dags. 21.08.15.

Bæjarráð lýsir yfir áhuga á málinu og felur bæjarstjóra að ræða við félagsmálaráherra um hugsanlegan stuðning bæjarins við móttöku flóttamanna.

Fylgiskjöl