Beint í efni

24. (1741). fundur

24.06.2016
Bæjarráð Garðabæjar

24. (1741). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

24.06.2016

Kl. 12:00 - 13:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - varaformaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari

Ritari

  • Guðjón E. Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1606378

01

Tilkynning Þjóðskrár Íslands um leiðréttingu kjörskrár vegna nýs ríkisfangs, dags. 16.06.16.

Bæjarráð samþykkir að Nikita Bazev, kt. 120687-4689, Asparlundi 9 verði tekinn á kjörskrá samkvæmt 4. mgr. 27. gr. laga um kosningar til Alþingis, sbr. lög um framboð og kjör forseta Íslands nr. 36/1945 vegna forsetakosninga sem fram eiga að fara 25. júní 2016, en hann öðlaðist íslenskan ríkisborgarrétt 16. júní sl. Hann telst því uppfylla skilyrði um að eiga kosningarrétt samkvæmt 1. gr. kosningalaga.

Málsnúmer 1606378

02

Tilkynning Þjóðskrár Íslands um leiðréttingu kjörskrár vegna andláts, dags. 22.06.16,

Bæjarráð samþykkir að leiðrétta kjörskrá samkvæmt 4. mgr. 27. gr. laga um kosningar til Alþingis, sbr. lög um framboð og kjör forseta Íslands nr. 36/1945vegna forsetakosninga sem fram eiga að fara 25. júní 2016, í samræmi við tilkynningu frá Þjóðskrá Íslands, dags. 22., 23 og 24. júní 2016 um að sjö einstaklingar hafi látist frá gerð kjörskrárstofna.