37 (1657). fundur
37 (1657). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
30.09.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
01
Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga varðandi ársfund sjóðsins 2014, dags. 18.09.14.
Lagt fram.
02
Bréf sýslumanns varðandi beiðni um umsögn vegna umsóknar um leyfi til heimagistingar að Skrúðási 12, dags. 17.09.14.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins og vísar því til nánari skoðunar byggingarfulltrúa.
03
Minnisblað deildarstjóra skóladeildar varðandi skipulag tómstundaheimila, dags. 11.08.14.
Umræður um málið. Bæjarráð vísar minnisblaðinu til vinnslu fjárhagsáætlunar 2015. $line$$line$Bókun Bjartrar framtíðar: $line$Björt framtíð telur að það sé mjög mikilvægt að forstöðumenn hafi einmitt þetta svigrúm til þess að efla faglegt og innihaldsríkt starf og halda utan um starfsmannahópinn sem svo heldur utan um börnin. $line$Tryggja þarf að starfsfólk hafi góða yfirsýn og helst menntun sem nýtist í starfi. Það er skoðun Bjartrar framtíðar að taka eigi vel í þetta erindi og styrkja frístundastarfið. $line$
05
Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám - Brúnás 6
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um stöðuleyfi fyrir gám á lóðinni Brúnás 6 til 1. desember 2014.
06
Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 39
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um byggingarleyfi vegna byggingar fjölbýlishúss við Holtsveg 39.
07
Umsókn um byggingarleyfi - Kauptún 6
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um byggingarleyfi vegna reyndarteikninga fyrir Kauptún 6.
08
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um virðisaukaskatt o.fl.(skattkerfisbreytingar), dags. 23.09.14.
Lagt fram.
09
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2015, dags. 24.09.14.
Lagt fram.
10
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi þingsályktunartillögu um eflingu heilbrigðisþjónustu, menntakerfis og velferðarþjónustu, dags. 25.09.14.
Lagt fram.
11
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi umsóknir um vinnuaðstöðu í Króki veturinn 2014-2015, dags. 25.09.14.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti afgreiðslu menningar- og safnanefndar um afnot af vinnuaðstöðunni í Króki. $line$Þuríður Jónsdóttir, kt. 300367-5859, tónskáld, til heimilis að Boðagranda 4, Rvk, tímabilið 1. nóvember 2014 - 1. febrúar 2015.$line$Bjargey Ólafsdóttir, kt. 271172-4009, Melhaga 17, Rvk, myndlist og ritlist, tímabilið 1. apríl - 31. maí 2015.
12
Bréf mannauðsstjóra varðandi umsókn Ólafs Schram um styrk vegna náms á háskólastigi, dags. 26.09.14.
Bæjarráð samþykkir umsókn Ólafs Schrams um afslátt á kennsluskyldu vegna náms á háskólastigi.