29. (1795). fundur
01.08.2017
Bæjarráð Garðabæjar
29. (1795). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
01.08.2017
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - varamaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir,
Einnig sátu fundinn Katrín Friðriksdóttir deildarstjóri skóladeildar og Sturla Þorsteinsson, bæjarfulltrúi.
Dagskrá
Málsnúmer 1707149
01
Minnisblað fræðslu- og menningarsviðs um greiðslur vegna námsgagna nemenda, dags. 20.07.17
Bæjarráð samþykkir að greiða fyrir námsgögn að upphæð 5000 kr fyrir hvern nemanda í grunnskólum Garðabæjar skólaárið 2017-2018 eða um 12.500.000 kr. Nánari útfærslu er vísað til fræðslu- og menningarsviðs og grunnskólanna. Bæjarráð leggur áherslu á að hagræðingar verði gætt við útfærsluna og bestu tilboða leitað.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1706365
02
Erindi Íbúðalánasjóðs um sölu á íbúðum til sveitarfélaga, dags. 28.06.17.
Bæjarráð samþykkir að kaupa íbúð í Asparholti 6 af Íbúðalánasjóði að upphæð 32.500.000 skv. skilmálum Íbúalánasjóðs.