47. fundur
47. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
04.12.2012
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson
- Páll Jóhann Hilmarsson
- María Grétarsdóttir
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Greinargerð um kynningarstarf vegna kosninga um sameiningu Garðabæjar og Sveitarfélagsins Álftanes
Lögð fram til kynningar.
02
Bréf Samkeppniseftirlitsins varðandi samkeppnissjónarmið við útleigu og sölu húsnæðis á vegum hins opinbera, dags. 29.11.12.
Lagt fram.
03
Bréf velferðarráðuneytisins varðandi frumvarp til laga um húsaleigubætur (réttur námsmanna), dags. 26.11.12.
Lagt fram.
04
Bréf Sigríðar Kolbrúnar Guðnadóttur varðandi rekstur fótaaðgerðarstofu í nýju hjúkrunarheimili við Strikið, dags. 19.11.12.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
05
Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi vörslu óskilakatta, dags. 20.11.12.
Lagt fram til upplýsingar.
06
Bréf Kópavogsbæjar varðandi viðræður um sameiningu sveitarfélaga, dags. 07.11.12.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
07
Bréf Akralands ehf og Atlantsolíu ehf varðandi umsókn um að reisa sjálfsafgreiðslubensínstöð á mótum Arnarnesvegar og Fífuhvammsvegar
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
08
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2012
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 22.11. - 30.11.12 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna Strandvegar 24.
09
Samningur við Vegagerðina um göngu- og hjólreiðastíga.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkomulag við Vegagerðina um gerð göngu- og hjólreiðastíga. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að Vegagerðin greiði helmingskostnað framkvæmda við gerð göngu og hjólreiðastíga. Á árinu 2013 er fjárveiting til framkvæmda 35,0 mkr og í frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar er gert ráð fyrir fjárveitingu að sömu fjárhæð.
10
Samningur um leigu á húsnæði fyrir bakarí við Strikið 3
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.
11
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2013 - álagningarreglur og gjaldskrár
Lögð fram tillaga um álagningu fasteignagjalda á árinu 2013. Lagðar fram eftirfarandi gjaldskrár: Gjaldskrá leikskóla Gjaldskrá sorphirðu Gjaldskrá fyrir tómstundaheimili Gjaldskrá um hreinsun taðþróa í hesthúsahverfinu við Kjóavelli. Gjaldskrá sundlauga. Reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum. Bæjarráð vísar frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2013 og 2014 - 2016 ásamt tillögum um álagningarreglur og gjaldskrár til síðari umræðu í bæjarstjórn.