Beint í efni

37. (2138). fundur

08.10.2024
Bæjarráð Garðabæjar

37. (2138). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

08.10.2024

Kl. 08:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Margrét Bjarnadóttir - varamaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2406817

01

Stekkholt 14 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Heimi Óla Heimissyni, kt. 270590-3149, leyfi til að byggja tvílyft einbýlishús með innbyggðum bílskúr að Stekkholti 14.

Málsnúmer 2410050

02

Vífilsstaðir - framtíð svæðis.

Bæjarstjóri kynnti erindi sem sent hefur verið til fjármála- og efnahagsráðherra, forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra. Þar er óskað eftir samráði við Garðabæ um framtíð og skipulag Vífilsstaðasvæðisins, þ.m.t. um framtíðarnýtingu fasteigna að Vífilsstöðum sem eru í eigu ríkisins.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja erindinu eftir, þ.m.t. með fundum með þeim ráðherrum sem erindinu er beint að.

Málsnúmer 2407394

03

Reglur um stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn - drög.

Drög að reglum Garðabæjar um stuðningsfjölskyldur við fjölskyldur fatlaðra barna, lögð fram.

Bæjarráð vísar drögunum til velferðarráðs og til umsagnar hjá samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.

Málsnúmer 2410071

04

Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi fjárhagsáætlun árið 2025, dags. 3. október 2024.

Lagt fram bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 ásamt tillögum að gjaldskrám. Áætlað framlag Garðabæjar er kr. 19.693.055. Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025 og gjaldskrám heilbrigðiseftirlits til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2409583

05

Bréf Úrvinnslusjóðs um fyrirkomulag greiðslna til sveitarfélaga vegna söfnunar plastvara á víðavangi, dags. 26. september 2024.

Í bréfinu kemur fram samþykkt stjórnar Úrvinnslusjóðs að greiða til sveitarfélaga í hlutfalli við íbúafjölda hvers veitarfélags fyrir árin 2023 og 2024, en greiðslan nemur 262 kr/kg. Hlutfall Garðabæjar er kr. 2.500.528.

Forsenda greiðslna er að Garðabær leggi fram staðfestingu á ráðstöfun fjár til hreinsunar á víðavangi og hreinsunar á ruslabiðum. Skila þarf inn gögnum til Úrvinnslusjóðs fyrir 31. desember 2024. Jafnframt er óskað eftir ítarlegri upplýsingum, liggi þær fyrir, varðandi magn úrgangs sem safnaðist úr hreinsun á víðavangi og ruslabiðum á vegum sveitarfélagsins ásamt upplýsingum um kostnað vegna hreinsunar fyrir framangreind ár.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfissviðs.

Málsnúmer 2409530

06

Bréf UMFÁ varðandi nafn á heimavöll liðsins íþróttahúsinu á Álftanesi, dags. 27. september 2024.

Í bréfinu kemur fram beiðni um að nefna íþróttahúsið á Álftanesi heiti Kaldalóns, fasteignafélags sem er styrktaraðili körfuknattleiksdeildar UMF Álftaness.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra útfærslu málsins í samráði við fulltrúa UMF Álftaness.

Málsnúmer 2409470

07

Þróunarsjóður grunnskóla 2024, síðari úthlutun.

Lagt var fram til kynningar upplýsingar um síðari úthlutun Þróunarsjóðs grunnskóla 2024. Að þessu sinni bárust 11 umsóknir.

Bæjarráð samþykkir tillögu skólanefndar grunnskóla að úthlutað verði nú kr. 13.428.000.-

Málsnúmer 2401346

08

Drög að samningi um þjónustu Samhjálpar við heimilislausa einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir.

Lögð fram drög að samstarfssamningi um þjónustu Samhjálpar við heimilislausa einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Gert er ráð fyrir að fjárframlag Garðabæjar sverði kr. 978.238, sem er 7,83% af heildarfjárhæð samningsins.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög, með fyrirvara um að aðrir samningsaðilar geri slíkt hið sama. Málinu er vísað til velferðarsviðs til frágangs.

Málsnúmer 2409520

09

Bréf Félags eldri borgara í Garðabæ um sæti formanns FEBG í öldungaráði, dags. 24. september 2024.

Lagt fram bréf Félags eldri borgara í Garðabæ dags. 24. september 2024, þar sem fram kemur að Anna R. Möller, formaður félagsins, hafi verið tilnefnd f.h. félagsins sem aðalmaður í Öldungaráð.