Beint í efni

3. (2151). fundur

21.01.2025
Bæjarráð Garðabæjar

3. (2151). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

21.01.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Margrét Bjarnadóttir - varamaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2409477

01

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2024 - kynning

Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2024. Ánægja íbúa með þjónustu bæjarins hækkaði á árinu 2024 miðað við árið áður. Könnunin leiðir í ljós að íbúar í Garðabæ eru þegar á heildina er litið ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.

Hulda Hauksdóttir deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2412193

02

Blikastígur 11 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Daníel Hinrikssyni kt. 170572-5809, leyfi fyrir viðbyggingu geymslu, á milli íbúðarhúss og bílskúrs, að Blikastíg 11.

Málsnúmer 2411387

03

Miðhraun 15 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Heimum atvinnuhúsnæði ehf., kt. 590404-2410, leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi núverandi vöruhúsnæðis að Miðhrauni 15. Verið er að breyta notkun húsnæðisins úr lager/skrifstofu í saumastofu og lager.

Málsnúmer 2501328

04

Arnarland - breyting á sveitarfélagamörkum - viljayfirlýsing

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að veita bæjarstjóra heimild til að undirrita, f.h. Garðabæjar, viljayfirlýsingu milli Garðabæjar og Kópavogs um endurskoðun á sveitarfélagamörkum á Arnarneshálsi og umferðabætandi aðgerðir.

Málsnúmer 2501215

05

Bréf Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins varðandi framlag til starfseminnar árið 2025, dags. 8. janúar 2025.

Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2025.

Málsnúmer 2501317

06

Bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 16. janúar 2025.

Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 13.102.628 til greiðslu fasteignagjalda árið 2025.

Málsnúmer 2501318

07

Bréf Skátafélagsins Vífils og Hjálparsveitar skáta í Garðabæ varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2025, dags. 16. janúar 2025.

Bæjarráð samþykkir að veita Skátafélaginu Vífli og Hjálparsveit skáta í Garðabæ styrk að fjárhæð kr. 5.498.140 til greiðslu fasteignagjalda árið 2025.