Beint í efni

3. (786). fundur

04.02.2016
Bæjarstjórn Garðabæjar

3. (786). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

04.02.2016

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Viktoría Jensdóttir - varamaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Hulda Hauksdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Sigríður Hulda Jónasdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 21. janúar 2016 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1601039F

01

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 26/1 ´16.

Steinþór Einarsson, ræddi 4. tl., erindi UMF- Stjörnunnar um lækkun fasteignagjalda árið 2016.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., þjónustukönnun 2015 og 6. tl., samantekt fjármálastjóra vegna kostnaðar við málaflokk fatlaðs fólks fyrir tímabilið 2011 ? 2015.

Bæjarstjóri ræddi 6. tl., samantekt fjármálastjóra vegna kostnaðar við málaflokk fatlaðs fólks fyrir tímabilið 2011 ? 2015.

Fundargerðin sem er 6 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1601046F

02

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 2/2 ´16.

Steinþór Einarsson, ræddi 9. tl., bréf Strætó bs. varðandi hönnunarreglur fyrir stoppistöðvar Strætó og gerði að umtalefni áætlun um fjölgun biðskýla í Garðabæ.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 9. tl., bréf Strætó bs. varðandi hönnunarreglur fyrir stoppistöðvar Strætó og lagði til að vísa málinu til kynningar í skipulagsnefnd.

Fundargerðin sem er 16 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1601040F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 28/1 ´16.

Sturla Þorsteinsson, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir vinnu við endurskoðun stefnu um málefni eldri borgara og sagði að drög verði lögð fram innan tíðar.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601038F

04

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 26/1 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601032F

05

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 22/1 ´16.

Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og ræddi dagskrá nefndarinnar á vormisseri.

Umræða var um dagskrá nefndarinnar og kynningarmál. Til máls tóku Halldór Jörgensson, Sturla Þorsteinsson, Áslaug Hulda Jónsdóttir og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri.

Fundargerðin lögð fram.


Málsnúmer 1601267

06

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 22/1 ´16.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., aðgerðaráætlun vegna fjárhagsáætlunar 2016, 3. tl., gjaldskrár Strætó, 5. tl., starfsmannamál, 6. tl., innri endurskoðun og 7. tl., fyrirhugað útboð vegna vagnakaupa.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601474

07

Fundargerð Sorpu frá 22/1 ´16.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og óskaði eftir upplýsingum um losun grenndargáma.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi sama mál. Þá ræddi Jóna 1. tl., niðurstöður húsasorpsrannsóknar og 3. tl., niðurstöður Gallup ? könnunar á þjónustu Sorpu.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601510

08

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 22/1 ´16.

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., deiliskipulag Heiðmerkur, 2. tl., breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar og deiliskipulags Kauptúns og 4. tl.. sameiginlega sýn á merkingu reiðhjólastíga á höfuðborgarsvæðinu.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 2. tl., breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar og deiliskipulags Kauptúns og 6. tl., fyrirhugaðan fund svæðisskipulagsnefndar og stjórnar Strætó bs.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601548

09

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 27/1 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601592

10

Endurskoðun á reglum um Þróunarsjóð grunnskóla

Sigríður Hulda Jónsdóttir sagði frá störfum stjórnar Þróunarsjóðs grunnskóla á fyrsta starfsári og gerði grein fyrir helstu breytingum sem lagðar eru til á reglum sjóðsins

Bæjarstjórn samþykkir endurskoðaðar reglur fyrir Þróunarsjóð grunnskóla.