14. (797). fundur
14. (797). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
06.10.2016
Kl. 17:00 - 18:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 15. september 2016 er lögð fram.[line]
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 20/9 ´16.
Fundargerðin sem er 26 tl. er samþykkt samhljóða.
1.10 - 1603167 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um frávik frá deiliskipulagi Grunda og Ása við útgáfu á byggingarleyfi raðhúsa við Unnargrund.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að klæðning fari út fyrir lóðarmörk raðhúsanna við Unnargrund 1-5 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
1.11 - 1305618 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar.
Fylgiskjöl
1.15 - 1606266 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 1 og Lynggötu 1 - 3.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 1 og Lynggötu 1-3 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 50 í 55.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 743.738 á íbúð m.v. BVT 642,4 stig í janúar 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Fylgiskjöl
1.5 - 1607249 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna umsóknar um byggingarleyfi við Holtsbúð 10.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Holtsbúð 10 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
1.6 - 1608482 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna umsóknar um byggingarleyfi við Hliðsnes 2.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á hesthúsi á lóðinni Hliðsnesi 2 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
1.7 - 1607180 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna umsóknar um byggingarleyfi við Hegranes 28.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynning vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir breytingum við húsið að Hegranesi 28 falli niður samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
Fylgiskjöl
1.8 - 1605408 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir Mávanes 7.
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum (GVG,SHJ,ÁHJ,SG,AG,JS,SÞ,SE,MG) tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna byggingar bílskúrs út fyrir byggingarreit hússins við Mávanes 7 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tveir greiddu atkvæði á móti. (HJ,GEH)
Fylgiskjöl
1.9 - 1608436 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna umsóknar um byggingarleyfi við Mávanes 21.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynning vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir breytingum við húsið að Mávanesi 21 falli niður samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 27/9 ´16.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 1. tl., bréf varðandi tillögu um lokun Herjólfsbrautar við Álftanesveg.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., bréf varðandi tillögu um lokun Herjólfsbrautar við Álftanesveg.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 1. tl., bréf varðandi tillögu um lokun Herjólfsbrautar við Álftanesveg.
María Grétarsdóttir, ræddi 1. tl., bréf varðandi tillögu um lokun Herjólfsbrautar við Álftanesveg.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til mál að nýju.
Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl. bréf varðandi tillögu um lokun Herjólfsbrautar við Álftanesveg.
Fundargerðin sem er 8 tl. er samþykkt samhljóða.
03
Fundargerð bæjarráðs frá 4/10 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., Borgarlínu - greinargerð um kynnisferð og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Hafa á þessu ári verið sett upp ný strætóskýli í Garðabæ? Er áætlun um að fjölga enn frekar strætóskýlum? “
Þá ræddi Steinþór 8. tl., bréf íbúa Prýðahverfis um frágang við götur og opin svæði og 12. tl., forvarnaviku í Garðabæ.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl. Borgarlínu - greinargerð um kynnisferð.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., forvarnaviku í Garðabæ.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 1. tl., Borgarlínu - greinargerð um kynnisferð og 8. tl., bréf íbúa Prýðahverfis.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., Borgarlínu - greinargerð um kynnisferð.
Fundargerðin sem er 13 tl. er samþykkt samhljóða.
3.11 - 1609138 - Drög að samningi Garðabæjar og Arkitektafélags Íslands um framkvæmdasamkeppni vegna skipulags miðsvæðis Álftaness.
Bæjarstjórn samþykkir samstarfssamning við Arkitektafélag Íslands um opna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag á miðsvæði Álftaness.
Fylgiskjöl
3.13 - 1606230 - Drög að samningi Garðabæjar og Hjallastefnunnar um rekstur dagvistar að Vífilsstöðum.
Bæjarstjórn samþykkir samning við Hjallastefnuna um rekstur dagheimilis að Vífilsstöðum.
Sturla Þorsteinsson, vék sæti við atkvæðagreiðslu um samning við Hjallastefnuna.
Fylgiskjöl
3.3 - 1607249 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Holtsbúð 10.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna framkvæmda við núverandi hús við Holtsbúð 10, samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Fylgiskjöl
3.4 - 1608251 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi, viðbyggingu neðanjarðar við Súlunes 10.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús að Súlunesi 10 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Fylgiskjöl
3.5 - 1608205 - Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna umsóknar um byggingarleyfi við Þernunes 7, dýpkun á bílskúr.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna framkvæmda við núverandi hús að Þernunesi 7 samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Fylgiskjöl
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 21/9 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi 2. tl., önnur mál - hækkun æfingagjalda.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál. Áslaug Hulda færði nýkrýndum Íslandsmeisturum Stjörnunnar í meistaraflokki kvenna hamingjuóskir með glæsilegan árangur.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð skipulagsnefndar frá 15/9 ´16.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 6. tl., stefnumótun um skilti og merkingar.
Steinþór Einarsdóttir, ræddi sama mál.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.
10
Fundargerðir heilbrigðisnefndar frá 26/9 og 3/10 ´16.
Sigurður Guðmundsson, ræddi útgáfu starfsleyfa.
Fundargerðin lögð fram.
12
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 9/9 ´16.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., niðurstöðu kærunefndar útboðsmála og 3. tl., dóm Héraðsdóms Reykjavíkur er varðar útboðsmál Strætó bs.
Fundargerðin lögð fram.
14
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 21/9 ´16.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., erindi Vestmannaeyjabæjar um að Sorpa taki við úrgangi til urðunar.
Almar Guðmundsson, vék af fundi og sæti hans tók Gunnar Einarsson, bæjarstjóri.
Fundargerðin lögð fram.
16
Kosning fulltrúa í undirkjörstjórnir og hverfiskjörstjórn Álftaness vegna kosninga til alþingis.
María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs og óskaði eftir upplýsingum um hvort störf í kjördeildum hefðu verið auglýst.
Gunnar Einarsson, svaraði fyrirspurn og upplýsti að störf í kjördeildum hefðu verið auglýst fyrir forsetakosningar í sumar og að mestu leyti væri um sama fólk að ræða við skipun í kjördeildir fyrir Alþingiskosningar.
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi aðila í hverfiskjörstjórn á Álftanesi og undirkjörstjórnir vegna kosninga til Alþingis sem fram eiga að fara 29. október 2016.
Aðalmenn
Anna Lena Halldórsdóttir, Hallakri 2b, Anna Margrét Halldórsdóttir, Kríunesi 14, Anna R. Möller, Nónhæð 3, Arna Gunnarsdóttir, Krókamýri 26, Ásgeir Örn Sigurpálsson, Skógarhæð 6, Dóra Viðarsdóttir, Seinakri 1, Elena Einisdóttir, Hraunhólum 11, Fanney Óskarsdóttir, Steinási 4, Gerður Gústavsdóttir, Lindarflöt 50, Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir, Lindarflöt 50, Herdís Sigurbergsdóttir, Línakri 3, Hildur Benediktsdóttir, Gimli, Hilmar Kristjánsson, Kjarrmóum 10, Ingibjörg Baldursdóttir, Móaflöt 59, Kolbrún Sigmundsdóttir, Hofakri 3, Margrét Sæmundsdóttir, Brekkubyggð 33, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, Ásbúð 8, Ragnheiður Stephensen, Löngumýri 57, Stefán Snær Stefánsson, Dalsbyggð 4, Svandís Ríkarðsdóttir, Móaflöt 49, Vala Dröfn Hauksdóttir, Móaflöt 37, Guðfinna Dröfn Aradóttir, Hólmatúni 8, Hjördís Jóna Gísladóttir, Hólmatúni 31, Kristín Rós Björnsdóttir, Sjávargötu 22, Sigríður Rósa Magnúsdóttir, Vesturtúni 46, Úlfar Ármannsson, Asparvík, Þorgerður Kristinsdóttir, Vesturtúni 42.
Varamenn
Anna Nilsdóttir, Hlíðarbyggð 21, Anton Kári Kárason, Línakri 1, Auður Guðmundsdóttir, Löngulínu 9, Birna Ingólfsdóttir, Asparási 6, Bjarni Jónsson, Ásbúð 8, Daníel Jósefsson, Kjarrmóum 39, Davíð Halldórsson, Bæjargili 15, Davíð Ó. Sigurbergsson, Lyngmóum 7, Dóra Þórisdóttir, Espilundi 10, Dröfn Ágústsdóttir, Lyngmóum 7, Erna Björk Ásbjörnsdóttir, Kjarrmóum 39, Guðný Ingunn Aradóttir, Brúnási 6, Guðrún Jónsdóttir, Krókamýri 76, Gunnhildur Eva Arnoddsdóttir, Hagaflöt 4, Halla Þórisdóttir, Heiðarlundi 21, Helga G. Sigurðardóttir, Bæjargili 29, Herdís Jónsdóttir, Hæðarbyggð 5, Íris Rut Erlingsdóttir, Furuási 2, Jóna Oddsdóttir, Krókamýri 20, Margrét Erla Björnsdóttir, Lynghólum 9, Sigrún Helga Pétursdóttir, Löngumýri 59, Gísli Gíslason, Hákotsvör 5, Guðríður Eyvindardóttir, Hólmatúni 43, Ingibjörg Jónsdóttir, Hólmatúni 10, Katrín Jónína Gunnarsdóttir, Birkiholti 6, Sæunn Eiríksdóttir, Strandvegi 26.
Hverfisstjórn á Álftanesi.
Aðalmenn
Soffía Eydís Björgvinsdóttir, Hólmtúni 35, Lúðvík Hjalti Jónsson, Lindarflöt 27, Andrés Sigurðsson, Hólmatún 31
Varamaður
Sveinn Ingi Lýðsson, Vesturtúni 27
17
Samningur við Urriðaholt um uppbyggingu byggðar í 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir samning við Urriðaholt um uppbyggingu í 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
18
Reglur um forgang að leikskólum í Garðabæ.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur um forgang að leikskólum í Garðabæ.