2. (804). fundur
2. (804). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
19.01.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Sigríður Björk Gunnarsdóttir - varamaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - varamaður
- Snævar Sigurðsson - varamaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði. Forseti bauð Snævar Sigurðsson velkominn á sinn fyrsta bæjarstjórnarfund.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 5. janúar 2017 er lögð fram.[line]
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 10/1 ´17.
Steinþór Einarsson, ræddi 2, tl. svar við fyrirspurn GEH um félagslegar íbúðir.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl., svar við fyrirspurn GEH um félagslegar íbúðir og 5. tl., drög að viljayfirlýsingu Áss styrktarfélags og Garðabæjar um byggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða
02
Fundargerð bæjarráðs frá 17/1 ´17.
Steinþór Einarsson, ræddi 18. tl., bréf Regins hf. varðandi frumtillögur að breytingum á skipulagi miðbæjar og 19. tl., bréf Regins hf. varðandi bílastæði við Garðatorg.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 19. tl., bréf Regins hf. varðandi bílastæði við Garðatorg.
Sigurður Guðmundsson ræddi 18. tl., bréf Regins hf. varðandi frumtillögur að breytingum á skipulagi miðbæjar og fjallaði sérstaklega um staðsetningu vínbúðar.
Snævar Sigurðsson, ræddi 13. tl., drög að endurnýjun samstarfssamnings við Stjörnuna og vék sérstaklega að hugmyndum sem hafa verið til umræðu um systkinaafslátt af æfingagjöldum.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 18. tl., bréf Regins hf. varðandi frumtillögur að breytingum á skipulagi miðbæjar og 13. tl., drög að endurnýjun samstarfssamnings við Stjörnuna.
Fundargerðin sem er 22. tl., er samþykkt samhljóða.
2.10 - 1609347 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna útgáfu á byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Blikanes 10.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á einbýlishúsinu við Blikanes 10. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Fylgiskjöl
2.11 - 1612107 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu á tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna stofnun lóðar fyrir spennustöð við Vesturhraun 5a.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Molduhrauns í tilefni umsóknar um stofnun nýrrar lóðar fyrir spennustöð, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
2.13 - 1609321 - Drög að endurnýjun samstarfssamnings Garðabæjar og UMF Stjörnunnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða endurnýjun samstarfssamning við UMF-Stjörnuna.
Fylgiskjöl
2.4 - 1608510 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna skiptingu eignar á lóðinni við Hörgatún 1
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna skiptingar eignar á lóðinni við Hörgatún 1. Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir bárust. María Grétarsdóttir situr hjá.
Fylgiskjöl
2.5 - 1610043 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu á tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts vegna skiptingu eignar á lóðinni við Hrísholt 11.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts vegna lóðarinnar við Hrísholt 11 samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, en í breytingunni felst að leyfa skiptingu einbýlishúss í tvær eignir. María Grétarsdóttir situr hjá.
Fylgiskjöl
2.7 - 1610132 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á skipulagi Akra vegna lóðanna við Breiðakur 2-4 og 6-8.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akra vegna lóðanna við Breiðakur 2-4 og 6-8 sem gerir ráð fyrir að í stað bílastæða á milli húsanna komi bílageymsla í kjallara. Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir bárust. María Grétarsdóttir situr hjá.
Fylgiskjöl
2.8 - 1612105 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulegt frávik frá deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Bakkaflöt 3.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna breytinga á húsnæði við Bakkaflöt 3 þó að bygging fari lítillega út fyrir byggingarreit en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. María Grétarsdóttir situr hjá.
Fylgiskjöl
2.9 - 1612146 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um að auglýsa að nýju deiliskipulag fyrir Arnarnes.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga en með þeirri breytingu að á nýjum lóðum við Hegranes komi raðhús í stað einbýlishúsa.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 4/1 ´17
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., íþróttahátíð og óskaði Hörpu Þorsteinsdóttur, íþróttakonu Garðabæjar og Dagfinni Ara Normann íþróttakarli Garðabæjar til hamingju með viðurkenningarnar. Þá óskaði Sigurður meistaraflokki kvenna í knattspyrnu til hamingju með að hafa verið valið lið ársins.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., íþróttahátíð, tók undir hamingjuóskir og færði öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar þakkir fyrir þeirra hlut.
Fundargerðin lögð fram.
04
Fundargerð skipulagsnefndar frá 12/1 ´17.
Steinþór Einarsson, ræddi 4. tl., gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar.
Gunnar Einarsson, ræddi sama mál.
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð umhverfisnefndar frá 11/1 ´17.
Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., skýrslu fornleifarannsókna á Hofsstöðum.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi sama mál. Þá ræddi Jóna 1. tl., vöktun á efnabúskap Vífilsstaðavatns og Urriðavatns og 4. tl., styrki úr Orkusjóði.
María Grétarsdóttir, ræddi 3. tl., skýrslu fornleifarannsókna á Hofsstöðum og 4. tl., styrki úr Orkusjóði.
Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls að nýju.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 10. tl., bréf Umhverfisstofnunar um endurvinnslu heimilisúrgangs.
María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð stjórnar SSH frá 9/1 ´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., málefni byggðasamlaga.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., málefni byggðasamlaga.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 1. tl. málefni byggðasamlaga.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., málefni byggðasamlaga.
Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., erindi frá verkefnistjórn verkefnisins „Staða og framtíð íslenskra sveitarfélaga“.
Steinþór Einarsson, ræddi sama mál.
Sturla Þorsteinsson, ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.