15. (798). fundur
15. (798). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
20.10.2016
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 6. október 2016 er lögð fram.[line][line]
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 11/10 ´16.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 10. tl., drög að reglum um skólaakstur fatlaðra skólabarna.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 10. tl., drög að reglum um skólaakstur fatlaðra skólabarna.
Gunnar Einarsson, ræddi 10. tl., drög að reglum um skólaakstur fatlaðra skólabarna.
Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., bréf Regins hf. um skipulagsmál í Molduhrauni og Garðatorgi.
Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., bréf Regins hf. um skipulagsmál í Molduhrauni og Garðatorgi.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 3. tl.., bréf Regins hf. um skipulagsmál í Molduhrauni og Garðatorgi.
Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 3. tl., bréf Regins hf. um skipulagsmál í Molduhrauni og Garðatorgi.
Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.
1.10 - 1510181 - Drög að reglum um skólaakstur fatlaðra skólabarna
Bæjarstjórn samþykkir reglur um ferðaþjónustu fatlaðra skólabarna með fyrirvara um að þær verði samþykktar af öllum aðildarsveitarfélögunum.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 18/10 ´16.
Steinþór Einarson, ræddi 9. tl., svar við fyrirspurn um strætóskýli.
Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóða.
2.7 - 1302243 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um forkynningu á tillögu að endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar.
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (GVG,ÁHJ,SHJ,AG,SG,JS,SÞ,SE) tillögu skipulagsnefndar að kynna íbúum tillögu og forsendur að nýju aðalskipulagi ásamt skýrslu um umhverfismat, eins og mælt er fyrir um 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt á íbúafundi. Einnig skal hún kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd.
Þrír bæjarfulltrúar (GEH,BÓS,MG) greiddu atkvæði gegn tillögunni.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, gerði grein fyrir atkvæði sínu og lagði fram eftirfarandi bókun sem allir bæjarfulltrúar minnihlutans standa að.
„Fulltrúar Bjartrar framtíðar, Samfylkingar og Fólksins í bænum lýsa sig ósammála áherslum meirihlutans við gerð nýs aðalskipulags fyrir Garðabæ.
Í fyrsta lagi, lúta mótmælin að landnýtingu og áherslum núverandi yfirvalda á að lágmarka byggð íbúðasvæða þar sem síst skyldi, t.d. á Garðaholti og Setbergsholti. Minnt er á að markmið svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins er að þéttleikinn verði um 23 íbúðir á hektara að jafnaði á svæðinu. Garðabær stefnir á um 10-12 íbúðir á hektara. Við höfnum áherslum á einsleita byggð og viljum frekar skapa samfélag þar sem íbúar eiga möguleika á að flytja sig innan hverfis t.d. vegna breytinga á fjölskyldustærð.
Í öðru lagi, þá erum við einnig ósammála áherslum meirihlutans um að miða æskilega stærð bæjarins við ákveðna tölu íbúa í stað þess að hámarka nýtingu og arðbærni þess lands sem í boði er og skapa þannig lífvænlega þétta byggð í stað dreifbýlis.
Í þriðja lagi, er óskað eftir því að töflur sem voru í umhverfisskýrslu á fyrri stigum séu settar inn í hana aftur.“
Steinþór Einarsson, gerði grein fyrir atkvæði sínu.
María Grétarsdóttir, gerði grein fyrir atkvæði sínu.
Sigurður Guðmundsson, gerði grein fyrir atkvæði sínu.
Baldur Ó. Svavarsson, gerði grein fyrir atkvæði sínu.
Sigurður Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs að nýju.
Baldur Ó. Svavarsson, kvaddi sér hljóðs að nýju.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, gerði grein fyrir atkvæði sínu.
Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs að nýju.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs að nýju.
María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs að nýju.
Sigurður Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs að nýju.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóðs.
Baldur Ó. Svavarsson, kvaddi sér hljóðs að nýju.
Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs að nýju og lagði fram breytingu við framlagða bókun og verður bókunin með þeirri breytingu færð í fundargerð.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð afmælisnefndar frá 1/9 ´16.
Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og færði afmælisnefndinni þakkir fyrir framkvæmd á skemmtilegri afmælishátíð á Garðatorgi.
Gunnar Einarsson, ræddi sama mál.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð skipulagsnefndar frá 6/10 ´16.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., aðalskipulag Garðabæjar.
Baldur Ó. Svavarsson, ræddi 1. tl., aðalskipulag Garðabæjar.
María Grétarsdóttir, ræddi 1. tl., aðalskipulag Garðabæjar.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., aðalskipulag Garðabæjar.
Sigurður Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs að nýju.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 1. tl., aðalskipulag Garðabæjar.
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 6/10 ´16.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., forvarnarviku, 2. tl., ársskýrslur grunnskóla 2015-2016, 4. tl., menntadag skólanna, 5. tl. Þróunarsjóð grunnskóla og 6. tl., kynningu á Garðaskóla.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., forvarnarviku.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl., forvarnarviku.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð umhverfisnefndar frá 12/10 ´16.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., sumarstörf 2016 og 7. tl., samstarf Wapp og Garðabæjar.
Baldur Ó Svavarsson, ræddi 1. tl. umhverfismál - tillögur til fjárhagsáætlunar.
Steinþór Einarsson ræddi 1. tl., umhverfismál - tillögur til fjárhagsáætlunar.
Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls að nýju.
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 14/10 ´16.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl., rekstraráætlun, 2. tl., ákvörðun Kópavogsbæjar um söfnun plasts í blátunnur, 8. tl., ráðgefandi álit EFTA dómstólsins í máli Sorpu gegn Samkeppniseftirlitsins og 9. tl. úrskurð úrskurðanefndar um upplýsingamál.
Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., ákvörðun Kópavogsbæjar um söfnun plasts í blátunnur og 8. tl., ráðgefandi álit EFTA dómstólsins í máli Sorpu gegn Samkeppniseftirlitinu.
Sturla Þorsteinsson, tók til máls að nýju.
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 7/10 ´16.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., leiðarkerfi og 3. tl., borgarlínu.
María Grétarsdóttir, ræddi 1. tl., gæludýr í strætó.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.
10
Tillaga um að veita bæjarráði umboð til að gera leiðréttingar á kjörskrá
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði umboð til að taka til meðferðar athugasemdir við kjörskrá vegna alþingiskosninga sem fram eiga að fara 29. október 2016 og gera viðeigandi leiðréttingar á henni samkvæmt 27. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.
11
Kosning fulltrúa í fulltrúaráð SSH
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Sigríði Huldu Jónsdóttur, bæjarfulltrúa í fulltrúaráð SSH.
12
Kosning aðal- og varafulltrúa í fastanefndir.
Mannréttinda- og forvarnarnefnd
Anna Hugadóttir, Holtsbúð 89, verður aðalmaður í stað Kamillu Sigurðardóttur, sem beðist hefur lausnar.
Freyja Haraldsdóttir, Mosprýði 2, verður varamaður í stað Önnu Hugadóttur.
Skólanefnd grunnskóla
Snævar Sigurðsson, Hörpulundi 8, verður varamaður í stað Elsu Bjarnadóttur, sem beðist hefur lausnar.
Leikskólanefnd
Hlíf Böðvarsdóttir, Klettási 21, verður varamaður í stað Kamillu Sigurðardóttur, sem beðist hefur lausnar.
Fjölskylduráð
Freyja Haraldsdóttir, Mosprýði 2, verður varamaður í stað Guðrúnar Sesselju Arnardóttur, sem flutt er úr bænum.
Skólanefnd grunnskóla
Hildur Jakobína Gísladóttir, Strandvegi 2, verður aðalmaður í stað Sigríðar Erlu Jónsdóttur sem beðist hefur lausnar.
13
Gjaldskrá fyrir hundahald.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu heilbrigðisnefndar um nýja gjaldskrá fyrir hundahald.
14
Gjaldskrá heilbrigðiseftirlits vegna leyfisveitinga o.fl.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu heilbrigðisnefndar um nýja gjaldskrá fyrir heilbrigðiseftirlit.