12. (795). fundur
12. (795). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
01.09.2016
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - varamaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 18. ágúst 2016 er lögð fram.[line]
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 23/8 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi afgreiðslu skipulagsnefndar og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Hvaða hverfi Garðabæjar eru ekki með gildandi deiliskipulag?
Hvenær er áætlað að ljúka gerða deiliskipulaga þeirra hverfa?“
Þá ræddi Steinþór 15. tl., rekstur Ísafoldar ? staða mála.
Gunnar Einarsson, ræddi sama mál.
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.
1.1 - 1605449 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Þernunes 1.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga við núverandi hús að Þernunesi 1.
Fylgiskjöl
1.10 - 1606461 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Viðskiptastrætis í Urriðaholti.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi Viðskiptastrætis Urriðaholts sem gerir ráð fyrir að heimilaðar verði allt að 36 smáíbúðir á lóðinni við Urriðaholtsstræti 10-12.
Fylgiskjöl
1.2 - 1608205 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Þernunes 7.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga við núverandi hús að Þernunesi 7.
Fylgiskjöl
1.3 - 1608250 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Súlunes 18.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fella niður að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi samkvæmt heimild í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga við núverandi hús að Súlunesi 18 og heimila útgáfu leyfisins.
Fylgiskjöl
1.4 - 1606460 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Hegranes 32.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna breytinga á núverandi húsi að Hegranesi 32 en engar athugasemdir bárust í grenndarkynningu samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
1.5 - 1605408 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Mávanes 7.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna breytinga á núverandi húsi að Mávanesi 7 en engar athugasemdir bárust í grenndarkynningu samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 30/8 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi 10. tl., afmælishátíð Garðabæjar.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 10. tl., afmælishátíð Garðabæjar.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 10. tl., afmælishátíð Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.
10
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 19/8 ´16.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., umsögn fagráðs vegna fyrirspurnar Mosfellsbæjar varðandi lóð fyrir gagnaver í Sólheimalandi sem er á svæði utan vaxtamarka svæðisskipulagsins.
Fundargerðin lögð fram.
11
Kosning aðal- og varamanns í leikskólanefnd
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi aðila aðal- og varafulltrúa í leikskólanefnd.
Ásbjörgu Ólöfu Sigurðardóttur, Birkiási 17 sem aðalfulltrúa í leikskólanefnd í stað Guðfinnu Eyrúnar Ingjaldsdóttur, sem beðist hefur lausnar.
Sigríði Finnbjörnsdóttur, Norðurbrú 6 sem varafulltrúa í stað Önnu Guðnýjar Andersen, sem flutt er úr bænum.