14. (892). fundur
14. (892). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
21.10.2021
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - 2. varaforseti
- Stella Stefánsdóttir - varamaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - varamaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundargerð ritaði: Guðjón Erling Friðriksson, bæjarritari.
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vefsíðu bæjarins.
Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 7. október 2021 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 12/10 ´21.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., innritun barna í leikskóla haustið 2021 og fjölgun húseininga fyrir leikskólastarfsemi.
Fundargerðin sem er 16 tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 19/10 ´21.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 (2022-2025).
Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.
2.3 - 2110166 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til norðurhlíðar Urriðaholts.
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breytinga og samruna á landnotkunarreitum 5.04 Vþ og 5.08 Vþ sem verður eftir breytingu 5.04 Vþ og minnkar úr 9,6 ha í 3,5 ha. Landnotkunarreitur 5.05.Íb stækkar úr 60,8 ha í 66,9 ha eða um 6,1 ha. Samhliða er lögð fram breyting á deiliskipulagi.“ (Mál nr.2110166)
Fylgiskjöl
2.4 - 2105343 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9.
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir að breyta lóðinni við Urriðaholtsstræti 9 úr lóð fyrir verslun og þjónustu í íbúðarhúsalóð fyrir 50 ára og eldri.“ (Mál nr. 2105343)
Fylgiskjöl
2.5 - 2108423 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna hækkunar nýtingarhlutfalls.
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir hækkun nýtingarhlutfalls.“ (Mál nr. 2108423)
Fylgiskjöl
2.7 - 2007640 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Frjóakur 9.
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna stækkunar kjallararýmis einbýlishússins að Frjóakri 9.
Tillagan var grenndarkynnt og komu fram athugasemdir og verður þeim sem þær gerðu tilkynnt um niðurstöðu málsins að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnar.“ (Mál nr. 2007640)
Björg Fenger, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
2.8 - 2007072 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að vinnureglum um veggi og girðingar.
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um vinnureglur varðandi veggi og girðingar.“ (Mál nr. 2007072)
Fylgiskjöl
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 12/10 ´21.
Björg Fenger, ræddi 4. tl., Dale Carnegie námskeið í sjálfstyrkingu unglinga, 5. tl., forvarnarviku Garðabæjar, 7. tl., innleiðingu ákvæða laga um farsæld barna og 8. tl., ofbeldi af hálfu barna.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., fyrstu áfangaskýrslur um óbein áhrif COVID-19.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., fyrstu áfangaskýrslur um óbein áhrif COVID-19.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 2. tl., fyrstu áfangaskýrslur um óbein áhrif COVID-19.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð skipulagsnefndar frá 14/10 ´21.
Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis á Arnarneshálsi og lagði fram svohljóðandi bókun.
„Undirritaður lýsir andstöðu sinni við þessi áform um uppbyggingu á Arnarneshálsi. Að mínu mati á þetta svæði ekki að fara undir vöru- og lagerhúsnæði. Það er ekki samræmi við aðliggjandi byggð á svæðinu. Í öðru lagi finnst mér ekki skynsamlegt að reisa þarna íbúðir sem eru eingöngu ætlaðar 50 ára og eldri. Það væri mun skynsamlegra að hafa þarna íbúðabyggð fyrir alla aldurshópa.“
Kjartan Örn Sigurðsson, kom til fundarins kl. 17:20.
Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis á Arnarneshálsi.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis á Arnarneshálsi.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 3. tl., breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis á Arnarneshálsi og 10. tl., vinnureglur um veggi og girðingar.
Gunnar Einarsson, ræddi uppbyggingu í Urriðaholti.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi uppbyggingu í Urriðaholti.
Ingvar Arnarson, ræddi uppbyggingu í Urriðaholti.
Gunnar Einarsson, ræddi uppbyggingu í Urriðaholti.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi uppbyggingu í Urriðaholti.
Kjartan Örn Sigurðsson, ræddi uppbyggingu í Urriðaholti.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi uppbyggingu í Urriðaholti.
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð umhverfisnefndar frá 13/10 ´21.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., utanvegahlaup í landi Garðabæjar, 2. tl., aðgerðir til að fækka sílamávum, 9. tl., loftlagsstefnu Garðabæjar. 7. tl. ástandsskoðun á skiltum á náttúrúsvæðum í Garðabæ.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., utanvegahlaup í landi Garðabæjar og 2. tl., aðgerðir til að fækka sílamávum.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., aðgerðir til að fækka sílamávum og 5. tl., sameiginlega svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021 ? 2032 á Suðvesturlandi.
Kjartan Örn Sigurðsson, ræddi, 2. tl., aðgerðir til að fækka sílamávum.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, 1. tl., utanvegahlaup í landi Garðabæjar, 2. tl., aðgerðir til að fækka sílamávum og 7. tl., ástandsskoðun á skiltum á náttúrusvæðum í Garðabæ.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., utanvegahlaup í landi Garðabæjar 2. tl., aðgerðir til að fækka sílamávum og 6. tl., veiðileyfi í Vífilsstaðavatni.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi að nýju 2. tl., aðgerðir til að fækka sílamávum.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi að nýju 1. tl., utanvegahlaup í landi Garðabæjar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 7. tl., ástandsskoðun á skiltum á náttúrusvæðum í Garðabæ.
Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., aðgerðir til að fækka sílamávum. Gunnar ræddi kynningarfund um uppbygginu golfvallar í Urriðakotshrauni.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi kynningarfund um uppbygginu golfvallar í Urriðakotshrauni.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 8/10 og 13/10 ´21.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., fg. frá 8/10, frumhönnun og kostnaðarmat við gerð nýrrar endurvinnslustöðvar, 3., tl., fg. frá 8/10, stöðuna varðandi framkomna galla GAJU, 4. tl., fg. frá 8/10, breytingar á móttökuskilmálum í Álfsnesi og Gufunesi 5. tl., fg. frá 8/10, niðurstöðu útboðs á útflutningi á brennanlegum úrgangi og 1. tl., fg. frá 13/10, sátt í máli fyrrverandi framkvæmdastjóra.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 5. tl., fg. frá 8/10, niðurstöðu útboðs á útflutningi á brennanlegum úrgangi og 1. tl., fg. frá 13/10, sátt í máli fyrrverandi framkvæmdastjóra.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi að nýju 5. tl., fg. frá 8/10, niðurstöðu útboðs á útflutningi á brennanlegum úrgangi.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 5. tl., fg. frá 8/10, niðurstöðu útboðs á útflutningi á brennanlegum úrgangi.
Gunnar Einarsson, ræddi málefni Sorpu bs. og kynnti drög að fjárhagsáætlun byggðasamlagsins. Þá ræddi Gunnar 5. tl., fg. frá 8/10 niðurstöðu útboðs á útflutningi á brennanlegum úrgangi.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi málefni Sorpu bs.
Fundargerðirnar lagðar fram.
08
Fundargerðir stjórnar SSH frá 4/10 og 15/10 ´21.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 8. tl., fg. frá 4/10, umdæmisráð barnaverndar höfuðborgarsvæðisins, 7. tl., fg. frá 4/10, Rjóðrið - þjónusta við langveik börn, 14. tl. fg. frá 4/10, tillögur að fyrirkomulagi almenningssamgangna, 10. tl., fg. frá 4/10, skoðanakönnun vegna kynningarfunda fyrir kjörna fulltrúa.
Kjartan Örn Sigurðsson, ræddi 6. tl., áfanga- og markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.
Gunnar Einarsson, ræddi 14. tl. fg. frá 4/10, tillögur að fyrirkomulagi almenningssamgangna og 10. tl., fg. frá 4/10, skoðanakönnun vegna kynningarfunda fyrir kjörna fulltrúa.
Fundargerðirnar lagðar fram.
09
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 6/10 ´21.
Gunnar Einarsson, ræddi 9. tl., salernismál í Bláfjöllum.
Fundargerðin lögð fram.
10
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 17/9 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
11
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 1/10 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
12
Fundargerðir eigendafundar Strætó bs. frá 4/10 og 15/10 ´21.
Fundargerðirnar lagðar fram.
13
Gjaldskrá heilbrigðiseftirlitsins vegna leyfisveitinga.
Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir breytingum á framlagðri gjaldskrá en gert er ráð fyrir 2,6% hækkun.
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá heilbrigðiseftirlitsins árið 2022.