Beint í efni

2. (898). fundur

03.02.2022
Bæjarstjórn Garðabæjar

2. (898). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

03.02.2022

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Guðfinnur Sigurvinsson
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Stella Stefánsdóttir
  • Gunnar Einarsson
  • Baldur Ólafur Svavarsson
  • Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 20. janúar 2022 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2201045F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 25/1 ´22.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 7. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 7. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 7. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 7. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið.

Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 3. tl., tillögu um útboð á skólamat.

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, ræddi 7. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið.

Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 7. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið.

Gunnar Einarsson, ræddi 7. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið.

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, ræddi að nýju 7. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið

Fundargerðin sem er 11 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2201056F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 1/2 ´22.

Stella Stefánsdóttir, ræddi 15. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna svæðis á norðurhluta Urriðaholts.

Baldur Ólafur Svavarsson, ræddi 15. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna svæðis á norðurhluta Urriðaholts.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 15. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna svæðis á norðurhluta Urriðaholts.

Baldur Ólafur Svavarsson, ræddi að nýju 15. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna svæðis á norðurhluta Urriðaholts.

Gunnar Einarsson, ræddi 15. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna svæðis á norðurhluta Urriðaholts.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., húseiningar fyrir leikskóla í Urriðaholti.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Fyrir hönd Garðabæjarlistans lýsi ég yfir vonbrigðum með þessa tillögu að skipulagi á norðanverðum Arnarneshálsi, eða í Arnarlandi. Þarna þyrfti að okkar mati að huga að góðri tengingu við Akrahverfið og sannarlega hafa þjónustu- og atvinnulífskjarna í kringum borgarlínustöðina líkt og gert er ráð fyrir - en þó alls ekki lager- og vöruhúsnæði. Við teljum að í stað þess að uppbygging verði eingöngu huguð fyrir fólk yfir miðjum aldri eigi að byggja fyrir alla aldurshópa: rúmgóð fjölbýli, stúdentaíbúðir, leiguíbúðir, búseturéttaríbúðir - og já, íbúðir fyrir 50 . Við teljum að Garðabær þurfi fjölbreytni og henni verður ekki náð með þessari tillögu.“

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Baldur Ólafur Svavarsson, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi að nýju 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Baldur Ólafur Svavarsson, ræddi að nýju 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Gunnar Einarsson, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 á svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Fundargerðin sem er 26 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

2.10 - 2108423 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir að nýtingarhlutfall breytist úr 0,3 í 0,35. Vekja skal athygli á tillögunni með því að senda dreifibréf í öll hús í Silfurtúni. (Mál nr. 2108423)

Baldur Ólafur Svavarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

2.11 - 2003384 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna lóðarinnar við Aratún 36.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits fyrir bílskúr á lóðinni við Aratún 36. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Aratúns 19, 21, 23, 24, 34 og 38. (Mál nr. 2003384)

Baldur Ólafur Svavarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

2.12 - 2112033 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðanna við Lyngás 7 og 9.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem gerir m.a. ráð fyrir sameiningu lóðanna við Lyngás 7 og 9. (Mál nr. 2112033)

Fylgiskjöl

2.15 - 2110166 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna svæðis á norðurhluta Urriðaholts.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 36. gr. sömu laga breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 breytingu á reitum 5.04 Vþ, 5. 08 Vþ og 5.05 Íb. (Mál nr. 2110166)

Samhliða er lagt til að auglýst verði breyting á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9.

Fylgiskjöl

2.16 - 2105343 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir að lóðin við Urriðaholtsstræti 9 breytist úr lóð fyrir verslun og þjónustu í lóð fyrir íbúðir fyrir 50 ára og eldri. (Mál nr. 2105343)

Samhliða er lagt til að auglýst verði breyting á aðalskipulagi 2016 - 2030 vegna svæðis á norðurhluta Urriðaholts.

Fylgiskjöl

2.17 - 2108312 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Prýðahverfi, sunnan Garðahraunsvegar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 2108312)

Fylgiskjöl

2.18 - 1806404 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lagningu stígs í Garðahrauni.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu stígs í Garðahrauni. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 1806404)

Fylgiskjöl

2.26 - 2201110 - Drög að framsalssamningi vegna úthlutunarréttar lóðar við Hestamýri á Álftanesi.

Bæjarstjórn samþykkir samning Húsbyggs ehf. og Hestamýrar ehf. um framsal lóðarréttinda vegna lóðarinnar við Hestamýri 1 - 3, samkvæmt úthlutunarsamningi um lóðir í Breiðumýri, dags. 14.ágúst 2020. (Mál nr. 2201110)

Fylgiskjöl

2.6 - 2110128 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 fyrir svæði á norðanverðum Arnarneshálsi.

Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum (BF,ÁHJ,SHJ,GS,GVG,JS,SS,GE,BÓS) gegn tveimur (ÞÞ,GHÁ) tillögu skipulagsnefndar að kynna almenningi samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis á Arnarneshálsi. (Svæði 3.37 VÞ) (Mál nr. 2110128)

Fylgiskjöl

2.7 - 2110129 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna deiliskipulags svæðis á norðanverðu Arnarneshálsi.

Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum (BF,ÁHJ,SHJ,GS,GVG,JS,SS,GE,BÓS) gegn tveimur (ÞÞ,GHÁ) tillögu skipulagsnefndar að kynna almenningi samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu vegna mótunar tillögu að deiliskipulagi á norðanverðum Arnarneshálsi. (Mál nr. 2110129)

Fylgiskjöl

2.8 - 2110364 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Lindarflöt 44.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um að heimilað verði að stækka byggingarreit lóðarinnar við Lindarflöt 44. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Lindarflatar 41, 42, 43, 45 og 46 og Hagaflatar 8 og 10. (Mál nr. 2110364)

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2201032F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 19/1 ´22.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, ræddi 5. tl., minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Stella Stefánsdóttir, ræddi 5. tl., minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201002F

04

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 4/1 ´22.

Björg Fenger kvaddi sér hljóðs og ræddi erindi Golfsambands Íslands og Golfklúbbsins Odds um styrk vegna Evrópukeppni stúknalandsliða í golfi sem fyrirhugað er að halda á Urriðavelli í sumar en erindinu var vísað til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2022. Björg lagði fram tillögu um að erindinu verði vísað til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.

Tillagan samþykkt með tíu atkvæðum.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir vék sæti við afgreiðslu málsins.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201049F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 27/1 ´22.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201036F

06

Fundargerð umhverfisnefndar frá 19/1 ´22.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 2. tl., samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2202013

07

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 31/1 ´22.

Gunnar Einarsson, ræddi starfsleyfi fyrir nýtt fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri og vakti athygli á að boðað hefur verið til vígslu hússins með ungum iðkendum næstkomandi laugardag.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201365

08

Fundargerð stjórnar SSH frá 17/1 ´22.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., áhersluverkefni sóknaráætlunar á árinu 2022.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., stöðu viðræðna við ríkið um endurskoðun samkomulags um almenningssamgöngur.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201281

09

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 26/1 ´22.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., kaup á stólalyftu fyrir skíðasvæðið í Skálafelli.

Baldur Ólafur Svavarsson, 1. tl., kaup á stólalyftu fyrir skíðasvæðið í Skálafelli.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102249

10

Fundargerð stjórnar SHS frá 17/12 ´21.

Fundargerðin lögð fram.