16. (968). fundur
16. (968). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
20.11.2025
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
- Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði. Fundargerð bæjarstjórnar frá 6. nóvember 2025 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2511006F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 11/11 ´25.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.tl. 50 ára afmæli Garðabæjar 2026.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. 50 ára afmæli Garðabæjar 2026.
Björg Fenger ræddi 1.tl. 50 ára afmæli Garðabæjar 2026 og fundargerðina og óskaði Garðabæ til hamingju með að vera orðið barnvænt samfélag.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. 50 ára afmæli Garðabæjar 2026 og fundargerðina og óskaði Garðabæ til hamingju með að vera orðið barnvænt samfélag.
Ingvar Arnarson ræddi 1.tl. 50 ára afmæli Garðabæjar 2026 og 3.tl. hönnun - útboð - gervigras.
Guðfinnur Sigurvinsson ræddi 1.tl. 50 ára afmæli Garðabæjar 2026 og 4.tl. bílastæðasjóð Garðabæjar.
Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. 50 ára afmæli Garðabæjar 2026, fundargerðina og óskaði Garðabæ til hamingju með að vera orðið barnvænt samfélag, 3.tl. hönnun - útboð - gervigras, 9.tl. erindi SSH til Alþingis um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og 4.tl. bílastæðasjóð Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 9.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2511018F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 18/11 ´25.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 4.tl., erindi UMFÍ um áskoranir og hvatningar til ríkis og sveitarfélaga.
Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun Garðabæjar. Gerði hann grein fyrir tillögu um álagningarhlutfall útsvars á árinu 2026.
Guðfinnur Sigurvinsson ræddi 3.tl. bílastæðasjóð Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 6.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2510019F
03
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 13/10 ´25.
Stella Stefánsdóttir ræddi 1.tl. rekstur 2025, 3.tl. aðsóknartölur 2025 og fundargerðina.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2511013F
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 12/11 ´25.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi fundargerðina og óskaði hann fyrir hönd bæjarstjórnar ungmennum, ungmennaráði og bæjarfélaginu til hamingju með að Garðabær sé orðið barnvænt samfélag, 1.tl. Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar janúar 2026, 2.tl. þarfagreiningu um íþróttasvæði í og við Miðgarð, 3.tl. Ungmennahús undirbúningsvinnu og 4.-19.tl. umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 3.tl. Ungmennahús undirbúningsvinnu.
Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 2.tl. þarfagreiningu um íþróttasvæði í og við Miðgarð og 3.tl. Ungmennahús undirbúningsvinnu.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. þarfagreiningu um íþróttasvæði í og við Miðgarð og 3.tl. Ungmennahús undirbúningsvinnu.
Almar Guðmundsson ræddi 3.tl. Ungmennahús undirbúningsvinnu.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2511012F
05
Fundargerð skipulagsnefnar frá 13/11 ´25.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2511015F
06
Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar frá 14/11 ´25.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2511010F
07
Fundargerð umhverfisnefndar frá 12/11 ´25.
Stella Stefánsdóttir ræddi 1.tl. mengunarmælingar 2025, 2.tl. útikennslu í friðlandi Vífilsstaðavatns 2025 og 3.tl. rannsókn á lífríki Vífilsstaðavatns.
Ingvar Arnarson ræddi 2.t. útikennslu í friðlandi Vífilsstaðavatns 2025 og 1.tl. mengunarmælingar 2025.
Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. mengunarmælingar 2025 og 2.tl. útikennslu í friðlandi Vífilsstaðavatns 2025.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2501149
08
Fundargerð stjórnar SSH frá 3/11 ´25.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 4.tl. aðalfund SSH 2025, 5.tl. forkönnun á sameiginlegum innkaupavef sveitarfélaga innan SSH - sóknaráætlun 2024 og 7.tl. almyrkva á sólu 12. ágúst 2026.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 7.tl. almyrkva á sólu 12. ágúst 2026.
Almar Guðmundsson ræddi 7.tl. almyrkva á sólu 12. ágúst 2026.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2501492
09
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 7/11 ´25.
Björg Fenger ræddi 1.tl. Reykjavík Sundabraut - aðalskipulagsbreyting og umhverfismat.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2506043
10
Kosning fulltrúa í fastanefndir
Gerð tillaga um að Tinna Borg Arnfinnsdóttir (C) verði kjörin varamaður í leikskólanefnd í stað Benedikts D. Valdez Stefánssonar (C).
Tillagan er samþykkt samhljóða.