Beint í efni

14. (929). fundur

19.10.2023
Bæjarstjórn Garðabæjar

14. (929). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

19.10.2023

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Harpa Þorsteinsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 5. október 2023 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2310013F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 10/10 ´23.

Engin kvaddi sér hljóðs.

Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2310022F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 17/10 ´23.

Enginn kvaddi sér hljóðs.

Fundargerðin sem er 19 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

2.10 - 2310197 - Drög að samningi Garðabæjar og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins 2024-2025.

Bæjarstjórn samþykkir samning Garðabæjar og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins til að gilda fyrir árin 2024-2025. (Mál nr. 2310197)

Fylgiskjöl

2.4 - 2306473 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er tekur til rammahluta Vífilsstaðalands.

„Bæjarstjórn samþykkir, samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36. gr. laganna, tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. október 2023, um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er nær til rammahluta aðalskipulags fyrir Vífilsstaðaland.
Tillagan gerir ráð fyrir því að ákvæði um fjölda hæða á landnotkunarreit 4.11 Íb (Þorraholt) breytist úr 4 hæðum í 5 hæðir og á landnotkunarreit 4.12. Íb (Vorbraut) breytist úr 3 hæðum í 4 hæðir. Í báðum tilfellum verði efstu hæðir inndregnar. Töflur um áætlaðan heildarfjölda íbúða breytast lítillega.
Tillagan var auglýst 27. júlí 2023 ásamt tillögum er varða breytingar á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar var til 11. september 2023. Athugasemdir voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 14. september 2023. Umsögn um athugasemdir liggur fyrir og gefa þær ekki tilefni á breytinga á auglýstri tillögu.
Samþykkt tillaga skal senda til Skipulagsstofnunar, ásamt athugasemdum og umsögn. Jafnframt skal senda þeim aðilum er athugasemdir gerðu afgreiðslu og umsögn bæjarstjórnar um athugasemdir og auglýsa niðurstöðu bæjarstjórnar.“ (Mál nr. 2306473)

Fylgiskjöl

2.5 - 2302671 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóða við Vorbraut.

„Bæjarstjórn samþykkir, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. október 2023, um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan gerir ráð fyrir því að hús sunnan Vorbrautar hækki um eina hæð eða úr þremur í fjórar og verði efsta hæðin inndregin. Einnig verður gert ráð fyrir heimild til að hafa bílakjallara á sömu lóðum.
Tillagan var auglýst 27. júlí 2023 ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar var til 11. september 2023. Ein athugasemd barst og var hún lögð fram á fundi skipulagsnefndar 14. september 2023. Umsögn um athugasemd liggur fyrir og þykir athugasemd ekki gefa tilefni til breytinga á auglýstri tillögu.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.“ (Mál nr. 2302671)

Fylgiskjöl

2.6 - 2305398 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóða við Þorraholt.

„Bæjarstjórn samþykkir, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 12. október 2023, um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða fjölbýlishúsalóða við Þorraholt aukist úr 220 í 236. Einnig að hluti bygginga geti orðið allt að 5 hæðir.
Tillagan var auglýst 27. júlí 2023 ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna var til 11. september 2023. Athugasemdir voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 14. september 2023. Umsögn um athugasemdir liggur fyrir. Skiplagsnefnd leggur til að taka tillit til athugasemda og gera eftirfarandi breytingu á auglýstri tillögu. Fellt er út ákvæði um heimild til að hafa hluta fjölbýlishússins á lóðinni við Þorraholt 7 fimm hæðir. Skilmálar fyrir suðurhluta og miðhluta lóðarinnar verða óbreyttir eða 4. hæðir eins og gildandi skipulag gerir ráð fyrir.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.“ (Mál nr. 2305398)

Fylgiskjöl

2.7 - 2306463 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar.
Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum innan deiliskipulagssvæðis Vetrarmýrar fjölgi úr 664 íbúðum í 795 íbúðir. Íbúðagerðir breytast ekki og áfram verður miðað við að flatarmál íbúða sé 100 m² að meðaltali. Þannig verði stefnt að því að bjóða upp á fjölbreyttar íbúðir í ólíkum stærðum. Áfram er miðað við lágmarkskröfur sem eru 1,5 bílastæði á íbúð 90 m² eða stærri og 1 bílastæði á íbúðir minni en 90 m². Nýlega var samþykkt breyting á deiliskipulagi Vetrarmýrar um almenna heimild til að byggja bílakjallara á tveimur hæðum undir húsum. Við þá breytingu rýmkast möguleikar byggingaraðila um að fjölga bílastæðum umfram lágmarkskröfur.
Bílastæði sem áður áttu að vera í tveimur sjálfstæðum bílahúsum meðfram Reykjanesbraut (Vetrarbraut 9) verða byggð sem kjallarar undir tveimur skrifstofubyggingum sem verða 5 hæðir. Í þessum húsum auk þriðju skrifstofubyggingarinnar sem verður 4 hæðir á reitnum Vetrarbraut 13 verða lágmarkskröfur um bílastæði auknar þannig að í stað þess að hafa eitt bílastæði á hverja 100 m² verður ger krafa um eitt bílastæði á hverja 60 m² atvinnuhúsnæðis. Byggingarreitur fyrir lóðarinnar við Vetrarbraut 1 skiptist og verður Vetrarbraut 1 og 3.
Auk þess gerir tillagan ráð fyrir því að atvinnuhúsnæði minnki úr 36.461 m² í 29.558 m². Í tillögunni er gert ráð fyrir að ekkert atvinnuhúsnæði verði á lóðinni við Vetrarbraut 1og 3. Á öðrum lóðum ætluðum fyrir atvinnuhúsnæði í gildandi deiliskipulagi að frátaldri lóðinni við Vetrarbraut 14 við suðurenda íþróttaleikvangs, verður eingöngu atvinnuhúsnæði á jarðhæð. Hinsvegar koma nýjar byggingar ofan á bílahús meðfram Reykjanesbraut eingöngu ætlaðar fyrir atvinnuhúsnæði.“ (Mál nr. 2306463)

Fylgiskjöl

2.8 - 2310034 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðarinnar við Hraunhóla 18.

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits á lóðinni við Hraunhóla 18. Grenndarkynna skal eigendum Hraunhóla 16, 19, 20, 21 og 23.“ (Mál nr. 2310034)

Fylgiskjöl

2.9 - 2309257 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu aðalskipulags Hafnarfjarðar sem gerir ráð fyrir að Hamraneslína verði lögð í jörð frá endavirki við Kaldárselsveg að Hamranesi.

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi bókun skipulagsnefndar vegna tillögu að breytingu aðalskipulags Hafnarfjarðar sem gerir ráð fyrir að Hamraneslína verði lögð í jörð frá endavirki við Kaldárselsveg að Hamranesi.
„Skipulagsnefnd Garðabæjar bendir á að æskilegt væri að fram kæmi á uppdrætti staðsetning strengendavirkis. Nefndin bendir á ósamræmi milli texta og uppdráttar eftir breytingu þar sem að háspennulínan er sýnd í jörð frá strengendavirki að bæjarmörkum við Garðabæ. Það er hvorki í samræmi við Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 sem sýnir Hamraneslínur sem loftlínu né niðurstöðu samtals Garðabæjar við Landsnet um útfærslu Hamraneslína innan bæjarmarka Garðabæjar að svo stöddu.“ (Mál nr. 2309257)

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2310019F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 11/10 ´23.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1. tl., greinargerð um hvatapeninga, 2. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2023 og 3. tl., afgreiðslu umsóknar Stjörnunnar um þátttökustyrk vegna Norðurlandamóts í hópfimleikum. Hrannar Bragi óskaði Stjörnufólki góðs gengis á mótinu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2023.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., greinargerð um hvatapeninga og 2. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2023.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., greinargerð um hvatapeninga og 2. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2023.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 2. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2023.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2023.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi að nýju 1. tl., greinargerð um hvatapeninga.

Brynja Dan Gunnarsdóttir, ræddi 2. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2023.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 1. tl., greinargerð um hvatapeninga og 2. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2023.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., greinargerð um hvatapeninga og 2. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2023.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2023.

Björg Fenger, ræddi 2. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2023.

Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 2. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2023.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2310005F

04

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 9/10 ´23.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., kynningu á bókasafni í Urriðaholtsskóla, 2. tl., listahátíð Rökkvunnar, 4. tl., aðventuhátíð Garðabæjar, 5. tl., leiksýninguna „Ef ég gleymi“ og 6. tl., endurnýjun samnings við Grósku.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 2. tl., listahátíð Rökkvunnar og almennt um þýðingu menningarstarfsemi.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi almennt um þýðingu menningarstarfsemi.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., listahátíð Rökkvunnar og almennt um þýðingu menningarstarfsemi.

Brynja Dan Gunnarsdóttir, ræddi 2. tl., listahátíð Rökkvunnar og almennt um þýðingu menningarstarfsemi

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2310015F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 12/10 ´23.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2310001F

06

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 4/10 ´23.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., niðurstöður skólapúlsins 2022-2023, 3. tl., menntadaginn 2023 og 6. tl., kynningu og samtal við skólastjórnendur í Hofsstaðaskóla.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2309033F

07

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 25/9 ´23.

Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., húsnæðismál Hönnunarsafnsins og 3. tl., samning við menningar- og viðskiptaráðuneytið um rekstur safnsins.

Guðfinnur Sigurvinsson ræddi 2. tl., húsnæðismál Hönnunarsafnsins og 3. tl., samning við menningar- og viðskiptaráðuneytið um rekstur safnsins.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 2. tl., húsnæðismál Hönnunarsafnsins og 3. tl., samning við menningar- og viðskiptaráðuneytið um rekstur safnsins.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., húsnæðismál Hönnunarsafnsins og 3. tl., samning við menningar- og viðskiptaráðuneytið um rekstur safnsins.

Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 2. tl., húsnæðismál Hönnunarsafnsins og 3. tl., samning við menningar- og viðskiptaráðuneytið um rekstur safnsins.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., húsnæðismál Hönnunarsafnsins og 3. tl., samning við menningar- og viðskiptaráðuneytið um rekstur safnsins.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2310003F

08

Fundargerð leikskólanefndar frá 4/10 ´23.

Margrét Bjarnadóttir, ræddi 1. tl., tillögur að bættu starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., tillögur að bættu starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., tillögur að bættu starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.

Margrét Bjarnadóttir, ræddi að nýju 1. tl., tillögur að bættu starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögur að bættu starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., tillögur að bættu starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., tillögur að bættu starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., tillögur að bættu starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., tillögur að bættu starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2310016F

09

Fundargerð leikskólanefndar frá 10/10 ´23.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2310014F

10

Fundargerð umhverfisnefndar frá 11/10 ´23.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., uppbyggingu innviða vegna orkuskipta.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 2. tl., uppbyggingu innviða vegna orkuskipta.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju 2. tl., uppbyggingu innviða vegna orkuskipta.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2301664

11

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 3/10 ´23.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2301318

12

Fundargerð stjórnar SSH frá 2/10 ´23.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., kynningu frá Veitum ohf. varðandi auknar kröfur um hreinsun í fráveitukerfum.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., kynningu frá Veitum varðandi auknar kröfur um hreinsun í fráveitukerfum.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2303672

13

Fundargerð eigendafundar Strætó bs. frá 2/10 ´23.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2305390

14

Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 2/10 ´23.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2310090

15

Gjaldskrá fyrir matvæla- og heilbrigðis- og mengunareftirlit 2024.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá fyrir matvæla- og heilbrigðis- og mengunareftirlit 2024.

Málsnúmer 2310090

16

Gjaldskrá fyrir hundahald 2024.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá hundahalds árið 2024.

Málsnúmer 2305582

17

Kosning fulltrúa í íþrótta- og tómstundaráð.

Afgreiðslu frestað.