7. (922). fundur
7. (922). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
04.05.2023
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
- Harpa Þorsteinsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Í upphafi fundar minntist forseti Ólafs G. Einarssonar, fyrrverandi sveitarstjóra í Garðahreppi, bæjarfulltrúa Garðabæjar, alþingismanns og ráðherra, en Ólafur lést 27. apríl sl. Ólafur var tilnefndur heiðursborgari Garðabæjar árið 2010. Bæjarfulltrúar risu úr sætum og heiðruðu minningu Ólafs með einnar mínútu þögn.
Fundargerð fundar bæjarstjórnar frá 13. apríl 2023 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2304014F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 18/4 ´23.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 13. tl., bréf Samtakanna 22 varðandi hinsegin fræðslu í grunnskólum Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 19 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2304023F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 25/4 ´23.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., nýtt flokkunarkerfi úrgangs á höfuðborgarsvæðinu og 10. tl., umsókn Brynju leigufélags um stofnframlag.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 1. tl., nýtt flokkunarkerfi úrgangs á höfuðborgarsvæðinu.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., nýtt flokkunarkerfi úrgangs á höfuðborgarsvæðinu.
Fundargerðin sem er 11 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 2304031F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 2/5 ´23.
Ingvar Arnarson, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi umsókn Landsnets hf. um breytingu á aðalskipulagi vegna breyttrar legu Hamraneslínu 1 og 2 og 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 4. Ingvar lýsti yfir andstöðu við samþykkt tillögu um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns.
Björg Fenger, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi umsókn Landsnets hf. um breytingu á aðalskipulagi vegna breyttrar legu Hamraneslínu 1 og 2.
Almar Guðmundsson, ræddi 16. tl., stöðu kjarasamningsviðræðna við Starfsmannafélag Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 22 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 2304016F
04
Fundargerð fjölskylduráðs frá 19/4 ´23.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., áform um fjölgun rýma á dagdvöl Ísafoldar.
Harpa Rós Gísladóttir, ræddi 2. tl., áform um fjölgun rýma á dagdvöl Ísafoldar og upplýsti að fyrirhugað er að kynna málið á fundi öldungaráðs á næstunni.
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., áform um fjölgun rýma á dagdvöl Ísafoldar.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2304005F
05
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 12/4 ´23.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 3. tl., samstarfssamning við Júdófélag Garðabæjar, 4. tl., tillögu um nýtingu á óráðstöfuðu rými í Miðgarði og 5. tl., sumarfrístundarstarf barna í Garðabæ sumarið 2023.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2303033F
06
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 12/4 ´23.
Björg Fenger, ræddi 2. tl. barnamenningarhátíð í Garðabæ og hrósaði öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar sem heppnaðist í alla staði mjög vel. Björg vék einnig að viðburði á Garðatorgi vegna vígslu á 450. rampinum undir merkjum Römpum upp Ísland.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2304024F
07
Fundargerð skipulagsnefndar frá 27/4 ´23.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2304008F
08
Fundargerð ungmennaráðs frá 10/3 ´23.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2304037F
09
Fundargerð ungmennaráðs frá 13/4 ´23.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., fund ungmennaráðs með bæjarstjórn.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., fund ungmennaráðs með bæjarstjórn.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2304025F
10
Fundargerð umhverfisnefndar frá 26/4 ´23.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 4. tl., ágang máva í Sjálandshverfi.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2301318
11
Fundargerðir stjórnar SSH frá 3/4 og 17/4 ´23.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
Málsnúmer 2301453
12
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 21/4 ´23.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1. tl., kaup Strætó bs. á rafmagnsvögnum og 5. tl., þróun farþegafjölda og sölutölur á árinu.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2208619
13
Ársreikningur Garðabæjar 2022 (síðari umræða)
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og fór nánar yfir helstu niðurstöður ársreiknings Garðabæjar fyrir árið 2022.
Bæjarstjóri lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2022.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi bókun.
„Sjálfbær og ábyrgur rekstur er undirstaða þess að geta boðið upp á framúrskarandi þjónustu við íbúa og það viljum við í Viðreisn gera.
Jákvæð niðurstaða í rekstri bæjarsjóðs, sem við sjáum birtast í ársreikningi fyrir árið 2022 byggir fyrst og fremst á umtalsverðum tekjum af lóðasölu. Slíkar einskiptisgreiðslur geta ekki verið grundvöllur sjálfbærs reksturs.
Viðreisn í Garðabæ telur brýnt að rýna þurfi í rekstur og framkvæma að fullu hagræðingartillögur Haraldar Líndals frá árinu 2019 til að ná fram hagræðingu og að endurskoða tekjuöflun sveitarfélagsins til þess að bæjarsjóður Garðabær standi raunverulega undir merkjum sjálfbærs reksturs. Óveruleg hækkun útsvarsprósentu myndi gjörbreyta stöðu bæjarsjóðs, án mikilla áhrifa á bæjarbúa. Fyrir liggja, enn fremur, tillögur um breytingu á Jöfnunarsjóði, sem ef fram ná að ganga, munu hafa veruleg áhrif á rekstrarreikning bæjarsjóðs.
Mikil uppbygging á sér stað í Garðabæ sem getur tímabundið aukið verulega tekjur sveitarfélagsins og styrkt tekjugrunn þess til framtíðar. Ábyrgt væri að nýta einskiptisgreiðslur við lóðasölu til niðurgreiðslu skulda, uppbyggingu varasjóðs og að einhverju leyti til fjárfestinga í Garðabæ. Þetta eru ekki tekjur sem á að grípa til við rekstur grunnstoða og daglegs reksturs. Til þess eru þær of óstöðugar til lengri tíma og óáreiðanlegar.
Viðreisn vill gjarnan taka þátt í nauðsynlegri hugmyndavinnu um hvernig sé hægt að hverfa frá því að treysta á einskiptistekjur til að halda uppi grunnrekstri Garðabæjar.“
Ingvar Arnarson, tók til máls. Ingvar lagði fram eftirfarandi bókun.
„Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans þakka starfsfólki fyrir vinnu við ársreikning. Það er ánægjuefni að skatttekjur á hvern íbúa voru hærri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Þar var gert ráð fyrir 910 þúsund kr. á íbúa en í raun komu inn 929 þúsund kr. á íbúa.
Þá er einnig jákvætt að sala á lóðum/byggingarrétti var töluverð sem gerir það að verkum að tekjur bæjarins hafa aukist um 3,6 milljarð króna á árinu 2022. Ánægjulegt er að sjá mikla fjölgun íbúa í Garðabæ, en frá árinu 2017 hefur fjölgað um 3200 íbúa.
Líkt og við höfum bent á undanfarin ár höfum við þó áhyggjur af nokkrum þáttum. Aukin verðbólga er áhyggjuefni, sérstaklega þar sem að verðtryggðar skuldir bæjarsjóðs hafa aukist töluvert síðustu ár. Árið 2017 voru þær 751 þúsund kr. en eru í dag orðnar 1528 þúsund kr. á hvern íbúa. Að auki eru fjármagnsgjöld mjög há eða 1.739 milljónir árið 2022. Mikilvægt er að hafa í huga að Garðabær hefur staðið í miklum framkvæmdum á þessu tímabili og hafa eignir bæjarins þ.a.l. aukist töluvert.
Sala á byggingarrétt skilaði bænum 3.665 milljónum í tekjur. Lóðir eru takmörkuð auðlind og ekki hægt að gera ráð fyrir að tekjur af slíkri sölu verði stöðugar til framtíðar, sérstaklega ef verðbólga helst há og kaupmáttur rýrnar.
Framundan eru framkvæmdir vegna löngu tímabærs viðhalds á eignum og fjárfestingar í innviðum sem eru nauðsynlegir til að veita bæjarbúum viðeigandi þjónustu. Til að standa undir þeirri fjárfestingu er mikilvægt að fara varlega í næstu skref. Að okkar mati er ekki skynsamlegt að auka mikið við skuldir á næstu árum og því nauðsynlegt að meta hversu miklu er hægt að ná inn með sölu lóða/byggingaréttar og í framhaldinu skoða hvort sú upphæð dugi til að standa undir þeim framtíðarfjárfestingum sem eru nauðsynlegar til að halda í við íbúaþróun Garðabæjar.
Markmið okkar í Garðabæjarlistanum er að halda gjöldum á íbúa eins lágum og kostur er, en einnig að tryggja góða þjónustu við íbúa og byggja upp innviði í takt við íbúaþróun. Til þess að það sé hægt þarf fjárhagsstaða Garðabæjar að vera sterk.“
Björg Fenger, tók til máls. Björg lagði fram eftirfarandi bókun.
„Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2022 endurspeglar sterka fjárhagslega stöðu og staðfestir lágt skuldahlutfall í samanburði við flest önnur sveitarfélög. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð og sjóðstreymið sterkt.
Það er mikilvægt að tekjur af sölu byggingarréttar eru nýttar til framkvæmda og uppbyggingar innviða. Uppbygging íbúðarsvæða er í fullum gangi og mikil þörf verður á áframhaldandi fjárfestingum í innviðum bæjarins á næstu árum.
Um þessar mundir eru ýmsar áskoranir í rekstri sveitarfélaga. Viðvarandi verðbólga og mikil hækkun vaxta hafa neikvæð áhrif á rekstrarkostnað og fjármagnsgjöld sveitarfélaganna og vanfjármögnun ríkisins á þeim mikilvæga og vaxandi málaflokki sem málefni fatlaðs fólks er, þyngir rekstur sveitarfélaganna verulega.
Við núverandi aðstæður hefur því sjaldan verið mikilvægara að ábyrg fjármálastjórn ríki í sveitarfélaginu og að íbúar búi að ráðdeild í rekstri bæjarsjóðs. Á sama tíma þarf þjónusta við íbúa að vera góð eins og staðfest hefur verið í könnunum og álögum á íbúa stillt í hóf.
Um þessa mikilvægu hagsmuni bæjarbúa vilja bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins standa vörð um hér eftir sem hingað til.“
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2022 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.
Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af viðstöddum bæjarfulltrúum.