5. (975). fundur
5. (975). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
05.03.2026
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
- Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
- Bjarni Theódór Bjarnason - varabæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Harpa Þorsteinsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 19. febrúar 2026 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 24/2 ´26.
Fundargerðin sem er 6.tl. er samþykkt samhjóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 3/3 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. sumarnámskeið barna 2026 og 7.tl. tónlistarskóla, stækkun - opnun tilboða.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.tl. sumarnámskeið barna 2026 og 7.tl. tónlistarskóla, stækkun - opnun tilboða.
Harpa Þorsteinsdóttir ræddi 1.tl. sumarnámskeið barna 2026.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. sumarnámskeið barna 2026.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. sumarnámskeið barna 2026.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. sumarnámskeið barna 2026.
Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir ræddi 1.tl. sumarnámskeið barna 2026.
Hrannar Bragi Eyhjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. sumarnámskeið barna 2026.
Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. sumarnámskeið barna 2026.
Fundargerðin sem er 7.tl. er samþykkt samhljóða.
2.3 - 2512238 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Votakur 3, deiliskipulagsbreyting.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. febrúar 2026 varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til lóðarinnar Votakur 3 að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits til vesturs þar sem heimilt yrði að stækka kjallara og útbúa svalir ofan á viðbyggingu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Akra.
Fylgiskjöl
2.4 - 2507363 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Krókamýri 14, fyrirspurn til umhverfissviðs.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. febrúar 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi að Krókamýri 14 sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við húsið til austurs að lokinni grenndarkynningu. Húsið er parhús og liggur fyrir yfirlýsing meðeigenda að þau geri ekki athugasemd við útfærsluna. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum. Skipulagsnefnd vísaði umsókn um byggingarleyfi til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð leikskólanefndar frá 18/2 ´26.
Margrét Bjarnadóttir ræddi 1.tl. innleiðingu farsældar í Garðabæ, 2.tl. íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025 og 3.tl. þrepaskipt skólaþjónusta í leik- og grunnskólum Garðabæjar.
Fundargerðin er lögð fram.
06
Fundargerð velferðarráðs frá 20/2 ´26.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026-2029), 2.tl. tölulegar upplýsingar í barnavernd, 3.tl. endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks, 4.tl. búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti og 5.tl. íbúaþing eldra fólks 2026.
Harpa Rós Gísladóttir ræddi 5.tl. íbúaþing eldra fólks 2026.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 5.tl. íbúaþing eldra fólks 2026 og 2.tl. tölulegar upplýsingar í barnavernd og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Viðreisn í Garðabæ óskar eftir því að þetta mál verði tekið upp í bæjarráði hið fyrsta þar sem þessar upplýsingar og töluleg gögn verða yfirfarin."
Fundargerðin er lögð fram.
08
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 13/2 ´26.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. óskir og væntingar til framtíðarbúsetu og staðan á húsnæðismarkaði - kynning.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 13/2 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. ungmennafargjöld, 4.tl. fjármál Strætó, 5.tl. Pant yfirlit og 8.tl. nýtt félag - staðan.
Fundargerðin er lögð fram.
11
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 18/2 ´26.
Bjarni Th. Bjarnason ræddi 3.tl. minnisblað forstöðumanns skíðasvæðanna dags. 16. febrúar 2026 um stöðuna í fjöllunum.
Harpa Þorsteinsdóttir ræddi fundargerðina.
Bjarni Th. Bjarnason tók til máls að nýju og ræddi fundargerðina.
Fundargerðin er lögð fram.