2. (954). fundur
2. (954). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
06.02.2025
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
- Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundargerð ritaði: Lúðvík Örn Steinarsson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins. Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði. Fundargerð bæjarstjórnar frá 16. janúar 2025 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2501022F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 21/1 ´25.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2024 - kynningu. Lagði hann fram eftirfarandi bókun:
"Bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Garðabær er líkt og oft áður í efsta sæti meðal sveitarfélaga með þjónustu sveitarfélagsins á heildina litið samkvæmt niðurstöðu þjónustukönnunar Gallup meðal íbúa 20 stærstu sveitarfélaga landsins fyrir árið 2024 en könnunin var gerð á tímabilinu 22. nóvember 2024 til 6. janúar 2025.
Könnunin sýnir almennt ánægju íbúa með þá þjónustu sem Garðabær veitir og íbúar eru mjög ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í. Ánægja íbúa eykst í nánast öllum málaflokkum frá könnuninni 2023. Líkt og undanfarin ár eru íbúar mjög ánægðir með þjónustu bæjarins við barnafjölskyldur. Garðabær er í efsta sæti meðal níu stærstu sveitarfélaga landsins varðandi þjónustu við grunnskóla og einnig er mikil ánægja með þjónustu leikskóla bæjarins og aðstöðu til íþróttaiðkunar. Þá eykst ánægja með þjónustu við fatlað fólk og hvernig sveitarfélagið sinnir menningarmálum. Fólk er mjög ánægt með gæði umhverfisins í nágrenni við heimili sitt og þjónustu í tengslum við sorphirðu.
Eins og ávallt áður teljum við, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, mikilvægt að niðurstöður þjónustukönnunar Gallup séu rýndar vandlega af stjórnendum og nefndum bæjarins með það að markmiði að bæta þjónustu við íbúa Garðabæjar á sem skilvirkastan og hagkvæmastan hátt. Við fögnum góðri niðurstöðu könnunarinnar og munu hér eftir sem hingað til vinna að því að þjónustan við bæjarbúa eflist og ánægja íbúa aukist.
Við þökkum stjórnendum og starfsfólki bæjarins fyrir metnað í sínum störfum sem skilar sér í ánægju íbúa.“
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1. tl. íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2024 - kynningu og 4.tl. Arnarland - breytingu á sveitarfélagamörkum - viljayfirlýsingu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 1.tl. íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2024 - kynningu og færði sérstakar þakkir til skólafólks og skólastjórnenda í bænum, hvort tveggja á grunn- og leikskólastigi.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2024 - kynningu og tók undir þakkir til starfsmanna bæjarins.
Björg Fenger ræddi 1.tl. íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2024 - kynningu og 4.tl. Arnarland - breytingu á sveitarfélagamörkum - viljayfirlýsingu.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2024 - kynningu.
Ingvar Arnarson ræddi 4.tl. Arnarland - breytingu á sveitarfélagamörkum - viljayfirlýsingu.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2024 - kynningu.
Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 4.tl. Arnarland - breytingu á sveitarfélagamörkum - viljayfirlýsingu.
Fundargerðin sem er 7.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2501034F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 28/1 ´25.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 14. tl. verkfall KÍ og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Kennarar á öllum skólastigum eru sérfræðingar í menntun og eru sem áhrifavaldar og uppfræðarar barna okkar og ungmenna burðarstólpi samfélagsins alls. Menntakerfið er grundvöllur velsældar og verðmætasköpunar á Íslandi og börn úr öllum samfélagshópum eiga skilið jöfn tækifæri til menntunar. Það gerist ekki nema vegna hæfra kennara sem geta mætt þörfum allra nemenda, hafa til þess starfsaðstæður og kjör. Það er því börnum, fjölskyldum, sveitarfélögum og samfélaginu öllu fyrir bestu að kjör kennara séu góð.
Garðabæjarlistinn styður kjarabaráttu kennara og lýsir yfir miklum vonbrigðum með að samningar hafi ekki náðst áður en verkföll skullu á að nýju. Það er okkur mikilvægt að sveitarfélögin standi við gefin loforð og jafni kjör kennara á við aðra sérfræðinga. Við óskum samninganefndum góðs gengis og vonum að samningar náist sem allra fyrst."
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 3.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Ásahverfi - farsímasamband.
Ingvar Arnarson ræddi 14.tl. verkfall KÍ.
Björg Fenger ræddi 14.tl. verkfall KÍ.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 14.tl. verkfall KÍ.
Fundargerðin sem er 14. tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2501042F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 4/2 ´25.
Björg Fenger ræddi 1.tl. húsnæðisáætlun HMS 2025 - kynningu og 2.tl. Miðgarð - samkomulag um úrlausn.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.tl. húsnæðisáætlun HMS 2025 - kynningu.
Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. húsnæðisáætlun HMS 2025 - kynningu.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 3.tl. beiðni Sorpu bs. um afgreiðslu á endurfjármögnun láns.
Fundargerðin sem er 4.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2501015F
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 15/1 ´25.
Margrét Bjarnadóttir ræddi 1.tl. leikskóla - stöðu innritunar og 2.tl. leikskóla - niðurfellingu leikskólagjalda fjöldatölur.
Guðlaugur Kristmundsson færði þakkir til leikskólafólks á degi leikskólans og 3.tl. viðurkenningar í skólastarfi.
Margrét Bjarnadóttir tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. leikskóla - niðurfellingu leikskólagjalda fjöldatölur.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2501028F
05
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 23/1 ´25.
Guðfinnur Sigurvinsson ræddi 1.tl. safnanótt 2025, 4. tl. endurskoðun menningarstefnu Garðabæjar og 5.tl. viðburðayfirlit á göngugötunni Garðatorgi.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2501026F
06
Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 23/1 ´25.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2501027F
07
Fundargerð skipulagsnefndar frá 23/1 ´25.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2501006F
08
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 15/1 ´25.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 1.tl. innleiðingu farsældar í Garðabæ, 2.tl. Þróunarsjóð grunnskóla 2025, 3.tl. viðurkenningar í skóla- og frístundastarfi, 4.tl. tillögu Garðabæjarlistans um stofnun starfshóps vegna seinkunar á upphafi skóladags á unglingastigi, 6.tl. úthlutun úr Námsgagnasjóði 2024-2025 og 7.tl. verkfall KÍ og SÍ í Garðaskóla.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2501020F
09
Fundargerð ungmennaráðs frá 14/1 ´25.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. endurskoðun á erindisbréfi ungmennaráðs Garðabæjar, 2.tl. yfirferð yfir starfsáætlun ársins og 3.tl. önnur mál. Hrannar Bragi hrósaði ungmennaráði fyrir hönd bæjarstjórnar fyrir vönduð vinnubrögð.
Harpa Rós Gísladóttir ræddi 3.tl. önnur mál.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi fundargerðina
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2501018F
10
Fundargerð velferðarráðs frá 17/1 ´25.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 2.tl. tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð, 3.tl. félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ - þróun, 5.tl. samning um samræmda móttöku flóttafólks og 6.tl. húsnæðisáætlun HMS - 2025.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 3.tl. félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ - þróun.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 3.tl. félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ - þróun.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju og ræddi 3.tl. félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ - þróun.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2501538
11
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 27/1 ´25.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2501492
12
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 17/1 ´25.
Björg Fenger ræddi 4.tl. svæðisskipulagsnefnd, störf nefndarinnar.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2501149
13
Fundargerð stjórnar SSH frá 20/1 ´25.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2501405
14
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 15/1 ´25.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. aðgerðaráætlun vegna lokun Dalvegar.
Björg Fenger ræddi 1.tl. aðgerðaráætlun vegna lokun Dalvegar.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2502040
15
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 30/1 ´25.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2502064
16
Tillaga Garðabæjarlistans um samkomulag við ríkið í húsnæðismálum
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu Garðabæjarlistans um samkomulag við ríkið í húsnæðismálum:
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að Garðabær geri samkomulag við ríkið á grundvelli rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða 2022-2032 og sameiginlega sýn og stefnu í húsnæðismálum, sem Samband íslenskra sveitarfélaga skrifaði undir árið 2022. Þar er t.a.m. gert ráð fyrir því að 30% nýrra íbúða verði hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði og að 5% nýrra íbúða verði félagslegar íbúðir á vegum sveitarfélaga."
Björg Fenger tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Húsnæðisuppbygging í Garðabæ hefur verið mjög mikil undanfarin ár og hefur framboð af nýjum íbúðum og fjölgun íbúa verið einna mest hér í Garðabæ meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og verður svo áfram næstu árin.
Í skipulagsvinnu og við sölu íbúðarlóða höfum við, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, lagt áherslu á lóðarframboð fyrir allar tegundir íbúða og í fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 og næstu þrjú árin þar á eftir er m.a. gert ráð fyrir fjárveitingu til kaupa á félagslegu húsnæði, stofnframlögum fyrir leiguíbúðir ásamt fjármagni til uppbyggingar á nýju búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu hér eftir sem hingað til leggja áherslu á að í Garðabæ sé að finna fjölbreytt íbúðaform og vinna að uppbyggingu hagkvæmra íbúða, bæði hvað varðar leiguúrræði og séreign. Örfá sveitarfélög hafa gert samkomulag við ríkið á grundvelli rammasamnings ríkis og sveitarfélaga og telja bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ekki þörf á að Garðabær gerist aðili að því. Ljóst er að uppbygging í Garðabæ er langt umfram flest önnur sveitarfélög og framlag sveitarfélagsins til meira jafnvægis á húsnæðismarkaði því umtalsvert. Garðabær á að auki í góðu samstarfi við ríkið um ýmislegt sem tengist húsnæðisuppbyggingu og slíkt samstarf mun halda áfram óháð rammasamningi ríkis og sveitarfélaga."
Guðfinnur Sigurvinsson tók til máls.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju.
Guðfinnur Sigurvinsson tók til máls að nýju.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls.
Tillaga Garðabæjarlistans var felld með 2 atkvæðum (ÞÞ, IA) gegn 7 (BF, SHJ, MB, HBE, GVG, GS, HRG). Tveir sátu hjá (BDG, GK)