13. (928). fundur
13. (928). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
05.10.2023
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - 2. varaforseti
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Bjarni Theódór Bjarnason - varabæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - 1. varaforseti
- Harpa Þorsteinsdóttir - bæjarfulltrúi
- Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, annar varaforseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 21. september 2023 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2309032F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 26/9 '23.
Harpa Rósa Gísladóttir, ræddi 11. tl., tilkynningu Sjúkratrygginga um fjölgun rýma í dagdvöl Ísafoldar.
Fundargerðin sem er 11 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2309044F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 3/10 '23.
Almar Guðmundsson, ræddi 10. tl., stöðu úthlutunar og sölu lóða.
Björg Fenger, ræddi 11. tl., málefni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og fór fram á að bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Garðabæjarlistans í bæjarráði verði færð til bókar í fundargerð bæjarstjórnar.
„Á ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn var 20. september sl. gerði innviðaráðherra grein fyrir að lagt hefur verið fram frumvarp um heildarendurskoðun á jöfnunarsjóði sem væri ætlað að búa til einfaldara og sanngjarnara kerfi. Fjallaði ráðherra sérstaklega um nýtt ákvæði í frumvarpinu sem kveður á um að skerða skuli framlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga sem ekki fullnýta útsvar sitt.
Í því sambandi telur bæjarráð rétt að árétta eftirfarandi. Sveitarfélögum er tryggt sjálfstæði í sínum málum, þ.m.t. varðandi álagningu útsvars og því óeðlilegt að reglur Jöfnunarsjóðs séu með þeim hætti að þær þvingi sveitarfélög til að leggja á íbúa sína hærra útsvar. Álagt útsvar hefur engin áhrif á hlutdeild Jöfnunarsjóðs í útsvarstekjum sem íbúar einstakra sveitarfélaga greiða og er því ekki hægt að halda því fram að tekjuminni sveitarfélög niðurgreiði útsvar fyrir aðra. M.ö.o. hefði hækkun útsvars í Garðabæ engin áhrif á tekjur Jöfnunarsjóðs eða stöðu annarra sveitarfélaga.
Í allri umræðu um Jöfnunarsjóð er nauðsynlegt að minna á að hlutdeild sjóðsins í útsvarstekjum er nýtt til framlaga til grunnskóla og málefna fatlaðs fólks sem áður voru á hendi ríkisins. Gera verður þá kröfu að skipting þeirra fjármuna milli sveitarfélaga fari fram með hlutlægum hætti hér eftir sem hingað til.“
Björg Fenger lagði fram eftirfarandi bókun.
„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn árétta það sem fram kemur í sameiginlegri bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Garðabæjarlistans í bæjarráði og varðar lagafrumvarp innviðaráðherra um heildarendurskoðun á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Frumvarp þetta varðar mikilvæga fjárhagslega hagsmuni Garðabæjar enda gegnir Jöfnunarsjóður mikilvægu hlutverki t.a.m. við yfirfærslu umfangsmikilla verkefna frá ríki til sveitarfélaga. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja það vera skyldu sína sem kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn Garðabæjar að gæta fjárhagslegra hagsmuna bæjarins og munu hér eftir sem hingað til vinna með markvissum hætti að því með hagsmuni allra íbúa að leiðarljósi.
Umræða um forgangsröðun verkefna eða pólitískar áherslur einstakra flokka eiga betur heima undir annarri umræðu en um breytingar á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.“
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 11. tl., málefni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 11. tl., málefni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Björg Fenger, ræddi að nýju málefni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 11. tl., málefni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Bjarni Th. Bjarnason, ræddi 11. tl., málefni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Almar Guðmundsson, ræddi 11. tl., málefni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 11. tl., málefni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Fundargerðin sem er 11 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 2309035F
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 27/9 '23.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi tillögur að fyrirkomulagi þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Þá ræddi Gunnar Valur samræmda móttöku flóttamanna.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, ræddi 3. tl., tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2309023F
04
Leikskólanefnd Garðabæjar - 8
Margrét Bjarnadóttir, ræddi 1. tl., tillögur að betra starfsumhverfi leikskóla.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., tillögur að betra starfsumhverfi leikskóla.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., tillögur að betra starfsumhverfi leikskóla.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, ræddi 1. tl., tillögur að betra starfsumhverfi leikskóla.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 1. tl., tillögur að betra starfsumhverfi leikskóla.
Almar Gudmundsson, ræddi 1. tl., tillögur að betra starfsumhverfi leikskóla.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., tillögur að betra starfsumhverfi leikskóla.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2309034F
05
Fundargerð leikskólanefndar frá 26/9 '23.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2309039F
06
Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 28/9 '23.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi úthlutun félagslegra leiguíbúða í búsetukjarna að Brekkuási 2 og 4. tl., tillögu um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., tillögu um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2309016F
07
Fundargerð umhverfisnefndar frá 20/9 '23.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2309041F
08
Fundargerð ungmennaráðs Garðabæjar frá 5/9 '23.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., undirbúning fyrir ungmennaþing.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2301453
09
Fundargerð stjórnar Strætó bs frá 15/9 '23.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi málefni Strætó bs. og rekstrarvanda félagsins, sbr. 6. tl., fundargerðarinnar.
Almar Guðmundsson, ræddi málefni Strætó bs. og rekstrarvanda félagsins.
Björg Fenger, ræddi málefni Strætó bs. og rekstrarvanda félagsins.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2303053
10
Fundargerð stjórnar SORPU bs frá 5/9 '23.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., stöðu brennsluverkefnis, 2. tl. árangur af sérsöfnun matarleifa og endurvinnsluefna við heimili, 3. tl. málefni grenndarstöðva, 4. tl., forsendur fjárhagsáætlunar 7. tl., fræðsluferð til Noregs og Danmerkur. Þá ræddi Guðfinnur fyrirkomulag á rekstri Sorpu bs. og upplýsti um að svör hafa borist við fyrirspurnum sem fram komu á fundi bæjarstjórnar 21. september sl.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2301318
11
Fundargerð stjórnar SSH frá 18/9 '23.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2306255
12
Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 15/6 '23.
Fundargerðin lögð fram.