5. fundur
5. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
03.07.2017
Kl. 16:30 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sturla D Þorsteinsson - formaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - varamaður
- Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
Starfsmenn
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Greiðslur til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna
Tekið er fyrir mál nr. 1705230 kynning á hækkun á greiðslum til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna.
Á fundi sínum 1.6. 2017 samþykkti bæjarstjórn Garðabæjar tillögu um hækkun á gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna með gildistíma frá 1. maí 2017. Fjölskylduráð fagnar hækkuninni.
02
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning
Tekið er fyrir mál nr. 1612080 endurskoðun reglna Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning.
Fjölskylduráð fer yfir reglur Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning og gerir tillögur að breytingum á reglunum. Fjölskylduráð samþykkir að senda drög að endurskoðuðum reglum til afgreiðslu bæjarráðs.
03
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Tekið fyrir mál nr. 1703112 umsókn um fjárhagsaðstoð. Erindi samþykkt. Nánari bókun er í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
Sigþrúður Ármann segir frá námskeiði um foreldrafærni.