6. fundur
6. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
24.08.2017
Kl. 16:30 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sturla D Þorsteinsson - formaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - varamaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
Starfsmenn
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Tekið er fyrir mál nr. 1708071 málskot í tengslum við umsókn um fjárhagsaðstoð. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
02
Endurúttekt á stuðningsfjölskyldu
Tekið er fyrir mál nr. 1705165 beiðni um endurúttekt á stuðningsfjölskyldu. Beiðni um endurnýjun á leyfi er samþykkt. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
03
Hagstofuskýrsla - þjónusta við fólk með fötlun
Tekið er fyrir mál nr. 1703080, skýrsla til Hagstofu Íslands um þjónustu Garðabæjar við fatlað fólk. Skýrslan er lögð fram til kynningar og rædd.
Fjölskylduráð óskar eftir samantekt á helstu niðurstöðum skýrslunnar til kynningar í Fjölskylduráði.
04
Samtöluskýrsla vegna 2016
Tekið er fyrir mál nr. 1604245, skýrsla til Barnaverndarstofu um mál sem barnaverndarnefnd og starfsmenn höfðu til umfjöllunar árið 2016. Skýrslan er lögð fram til kynningar og rædd.
Fjölskylduráð óskar eftir að málið verði sett fram aftur og þá til samanburðar við fjölda tilkynninga fimm ár aftur í tímann.
05
Hagstofuskýrsla félagsþjónusta 2016
Tekið er fyrir mál nr. 1702082, skýrsla til Hagstofu Íslands um félagsþjónustu Garðabæjar árið 2016. Skýrslan er lögð fram til kynningar og rædd.
06
Heimilisofbeldi- Verkefni
Tekið er fyrir mál nr. 1611117 skýrsla um verkefni gegn heimilisofbeldi. Skýrslan lögð fram til kynningar og rædd.
Starfsmaður tók saman helstu atriði skýrslunnar, fjölda mála í Garðabæ, stöðu Garðabæjar í samanburði við önnur sveitafélög og mögulegar tillögur til úrbóta.