9. fundur
9. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
30.09.2020
Kl. 16:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Árni Björn Kristjánsson - varamaður
Starfsmenn
- Guðrún Hrefna Sverrisdóttir - félagsráðgjafi
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Hildigunnur Árnadóttir
Dagskrá
01
Beiðni um umsögn vegna umsóknar um leyfi sem fósturforeldri
Beiðni Barnaverndarstofu um að veita umsögn um hæfi til að taka barn í fóstur.
Mál nr. 200212 lagt fram, beiðni um umsögn vegna umsóknar um að gerast fósturfjölskylda tveggja barna. Fjölskylduráð fjallaði um málið á grundvelli fyrirliggjandi gagna og umsagnar félagsráðgjafa og með vísan til þeirra gagna mælir fjölskylduráð með að viðkomandi verði veitt leyfi til að gerast fósturforeldrar. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
02
Ættleiðing barns
Umsögn um hæfi umsækjanda til að ættleiða barn með sérþarfir erlendis frá.
Mál nr. 200212 lagt fram, beiðni um umsögn vegna umsóknar um ættleiðingu barns erlendis frá. Fjölskylduráð fjallaði um málið á grundvelli fyrirliggjandi gagna og umsagnar félagsráðgjafa og með vísan til þeirra gagna mælir fjölskylduráð með að viðkomandi verði veitt leyfi til að ættleiða barn. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.