5. fundur
5. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
26.06.2014
Kl. 16:30 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sturla D Þorsteinsson - formaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Bergljót K. Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Kynning á fundargátt og starfsháttum nefnda
Tekið er fyrir mál nr. 1406279 - kynning á starfsháttum nefnda. Guðjón E. Friðriksson, bæjarritari, kynnir helstu reglur um starfsemi og starfshætti nefnda sem nauðsynlegt er að hafa í huga í upphafi kjörtímabils.
02
Beiðni um umsögn vegna ættleiðingar barns
Sjá gögn í trúnaðarhluta fjölskylduráðs.
Tekið er fyrir mál nr. 1403037 - ættleiðingarmál. Sýslumaðurinn í Reykjavík fer fram á umsögn barnaverndarnefndar Garðabæjar í tengslum við fyrirhugaða ættleiðingu. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
03
Ósk um endurskoðun á ákvörðun um félagslega heimaþjónustu
Sjá gögn í trúnaðarmálahluta fjölskylduráðs.
Tekið er fyrir mál nr. 1406256 - málskot í tengslum við umsókn um félagslega heimaþjónustu. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
04
Helstu verkefni fjölskyldusviðs á nýju kjörtímabili
Tekið er fyrir mál nr. 1406280 - helstu verkefni fjölskylduráðs á nýju kjörtímabili. Farið er yfir helstu verkefni sem fyrirliggja s.s. endurskoðun reglna í ýmsum málaflokkum sem heyra undir fjölskyldusvið Garðabæjar.
05
Umsókn um fjárhagsaðstoð maí 2014
Tekið er fyrir mál nr. 1405086 - málskot í tengslum við umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
06
Umsókn um fjárhagsaðstoð í maí 2014.
Tekið er fyrir mál nr. 1405088 - málskot í tengslum við umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.