Beint í efni

2. fundur

26.01.2021
Fjölskylduráð Garðabæjar

2. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

26.01.2021

Kl. 16:30 - 17:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Kristín Einarsdóttir - varamaður

Starfsmenn

  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Hildigunnur Árnadóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2101367

01

Upplýsingafundur ÍTG og Fjölskylduráðs

Sameiginlegur upplýsingafundur ÍTG og fjölskylduráðs Garðbæjar um forvarnarmál. Kynning á málum sem unnið hefur verið að á sviðunum.

Mál nr. 2101367 lagt fram til kynningar og umræðu. Farið var yfir forvarnamál og stöðu ýmissa mála sem tengjast forvörnum og viðbrögðum við stöðu einstaklinga og hópa.

Kynntar voru breytingar á starfsmannahaldi sviða og á bæjarskrifstofu.

Eineltisáætlanir eru í endurskoðun, undirbúningur íbúaþings með Vöndu Sigurgeirsdóttur stendur yfir.



Forvarnaáætlun er í kynningu til almennings sem getur komið athugasemdum á framfæri. Komið var inn á samstarfsaðila, forvarnavikuna með Ungmennaráði, átak í hvatapeningum 16-18 ára. Harpa Þorsteinsdóttir spurði um kynjaskiptingu nýtingar hvatapeninganna.

Samstarf félagsmiðstöðvanna - Götuvaktin, sumaropnun, rafrænt ungmennahús ofl.

Stutt kynning á hlutverki starfshóps um stöðu barna í Covid-19 í Garðabæ.

UNICEF og innleiðing Barnasáttmála Sþ. Gunnar Richardson er starfsmaður hópsins.

Innleiðing Heimsmarkmiða Sþ um sjálfbæra þróun - Sunna Sigurðardóttir er starfsmaður hópsins.

Barnaverndin - Hildigunnur Árnadóttir fór yfir helstu áherslur í starfi barnaverndar og á hvaða forsendum mál eru unnin. Ekki sem forvarnir heldur viðbragð við bágri stöðu barna þegar vægari úrræði hafa ekki borið árangur.

Verkefnið Velferð barna í Garðabæ kynnt, markmið þess og tilgangur.

Heilsueflandi samfélag, HSAM og gátlistar Emættis Landlæknis - Kári og Eiríkur Björn eru í samstarfshópi Embættis Landlæknis.

Ungmennaráð Garðabæjar, Tómas þór Jacobsen forstöðumaður Félagsmiðstöðarinnar Klakans.



Félags og tómstundastarf eldri borgara - Svanhildur Þengilsdóttir veitir þeim málaflokki forstöðu. Starfið er að fara aftur í gang eftir hlé síðan í 1. bylgju Covid-19.



Hlutverk nefndarfólks og fyrirspurnir til starfsmanna - Áréttað var að opinberar fyrirspurnir fari formlegar leiðir í gegnum nefndirnar og þeim svarað á þeim vettvangi.