2. fundur
2. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Álftanesskóla
16.09.2014
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
- Sigurður Bjarnason - aðalmaður
- Rósanna Andrésdóttir - aðalmaður
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
01
Ferðastyrkir 2014
Samþykkt var að veita tvo ferðastyrki vegna landsliðsferða að upphæð kr. 20.000,- hvorn til$line$Irma Gunnarsdóttir kt. 0402982319 U-16 FRÍ Fjölþrautarmót, Mateira Portugal 3.7.2014$line$Irma Gunnarsdóttir kt. 0402982319 U-19 FRÍ NM í Noregi 15.-17.8.2014
02
Gym-heilsa heilsurækt
Samningur um leigu Gym heilsu í íþróttamiðstöðinni Breiðumýri rennur út 1. janúar 2015.
Samþykkt var að beina til bæjarráðs að hefja viðræður við Gym-heilsa um áframhaldandi leigu á aðstöðu fyrir heilsurækt næsta árið í íþróttamiðstöðinni Breiðumýri á Álftanesi. Núverandi samningur rennur út 1. janúar 2015.
03
Opnunartími Álftaneslaugar
Samþykkt hefur verið að halda "sumaropnun" Álftaneslaugar fram að áramótum a.m.k.
Samþykkt var að halda "sumaropnun" Álftaneslaugar fram að áramótum í tilraunaskyni. Opið er virka daga 06:30-21:00 og frá 09:00-19:00 laugardaga og sunnudaga.
04
Kynning íþróttafélaga á Álftanesi fyrir ÍTG
Almenn kynning á íþrótta og tómstundastarfi á Álftanesi.
Fulltrúar úr íþrótta- og tómstundastarfi kynntu starfsemi sína fyrir nefndarmönnum ÍTG. $line$Félagsmiðstöðin Elítan (skólinn), Tómstundaheimilið, Golfklúbbur Álftaness, UMFÁ og fulltrúar meistaraflokksráðs kvenna í knattspyrnu, og Skátafélagið Svanir.
05
Önnur mál 2014
Fulltrúar skoðuðu aðstöðu Elítunnar og gengu um íþróttavelli í lok fundar.$line$Nýr fulltrúi, Hilmar Daði, mætti á fundinn frá Bjartri framtíð.