6. fundur
6. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
07.01.2015
Kl. 17:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
- Sigurður Bjarnason - aðalmaður
- Rósanna Andrésdóttir - aðalmaður
- Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1411154
01
íþróttamaður Garðabæjar 2014
Val á íþróttakarli og íþróttakonu Garðabæjar.$line$Tilnefningar til viðurkenningar fyrir störf að æskulýðamálum.
Val á íþróttakarli og íþróttakonu Garðabæjar.$line$Tilnefningar til viðurkenningar fyrir störf að æskulýðamálum.$line$$line$Íþróttakona Garðabæjar 2014 er Harpa Þorsteinsdóttir knattspyrnukona Stjörnunni.$line$Íþróttakarl Garðabæjar 2014 er Daníel Laxdal knattspyrnumaður Stjörnunni.$line$Viðurkenningu fyrir störf að æskulýðsmálum fá Erling Ásgeirsson og Jóhanna Aradóttir$line$Farið var yfir dagskrá verðlaunahátíðarinnar í fimleikasalnum í Ásgarði sunnudaginn 11. janúar kl. 13:00 til 15:30$line$Afhent verða 391 verðlaun til 250 einstaklinga.
Málsnúmer 1501031
02
Reglur um tilnefningar íþróttamanns Garðabæjar
Erindi varðandi Garðbæinga með félögum utan Garðabæjar
Erindi varðandi Garðbæinga með félögum utan Garðabæjar$line$$line$Erindi um að opna á tilnefningar íþróttafólks úr Garðabæ sem stundar íþróttir með öðrum félögum en innan Garðabæjar, þrátt fyrir að íþróttin sé stunduð í bænum var tekið fyrir. Umræður urðu um málið. Ákveðið var að taka allar reglurnar til endurskoðunar með haustinu þar sem nú er of skammt til afhendingar viðurkenninga síðasta árs.
Málsnúmer 1501029
03
Reglur um hvatapeninga árið 2015
Uppfærsla á ártölum í reglum um Hvatapeninga 2015
Uppfærsla á ártölum í reglum um Hvatapeninga 2015$line$$line$Ákveðið var að breyta einungis ártölum í núgildandi reglum þannig að þær haldist óbreyttar fyrir 5 ára til og með 18 ára.$line$Rætt var um að rýmka heimildir til að nýta Hvatapeningana í allar frístundir s.s. tónlistarnám í Tónlistarskóla Garðabæjar, tungumálanámskeið önnur en móðurmálsnámskeið. Ákveðið var að taka þessa umræðu áfram áður en reglunum verður breytt í þessa átt.
Málsnúmer 1412302
04
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Egill Magnusson U-18 EM í handbolta í Póllandi
Egill Magnusson U-18 EM í handbolta í Póllandi$line$$line$Samþykkt að veita ferðastyrk vegna landsliðsverkefnis að upphæð kr. 20.000,- vegna 2014.
Málsnúmer 1412301
05
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Egill Magnusson Undankeppni EM U-18 í Svíþjóð í janúar 2014
Egill Magnusson Undankeppni EM U-18 í Svíþjóð í janúar 2014.$line$$line$Samþykkt að veita ferðastyrk vegna landsliðsverkefnis að upphæð kr. 20.000,- vegna 2014.
Málsnúmer 1412309
06
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Norma Dögg Róbertsdóttir fimleikakona Tvær landsliðsferðir 2014
Norma Dögg Róbertsdóttir fimleikakona, tvær landsliðsferðir 2014.$line$$line$Samþykkt að veita ferðastyrk vegna tveggja landsliðsverkefna að upphæð kr.40.000,- vegna 2014.
Málsnúmer 1412245
07
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Róbert Karl Hlöðversson A-landslið í blaki 1. janúar 2015 NOVOTEL CUP Lúxemborg
Róbert Karl Hlöðversson A-landslið í blaki 1. janúar 2015 NOVOTEL CUP Lúxemborg.$line$$line$Samþykkt að veita ferðastyrk vegna landsliðsverkefnis að upphæð kr. 20.000,- vegna 2015.
Málsnúmer 1302243
08
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 4.desember 2014 tillögu að lýsingu gerðar Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr 123/2010.$line$Í samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr 123/2010 og gr. 4.2.4. í Skipulagsreglugerð nr.90/2013 er lýsingin nú kynnt almenningi og umsagnaraðilum. Er hún hér með sent nefndum bæjarins til kynningar. Frestur til að skila inn umsögnum eða ábendingum vegna lýsingarinnar er til 17.febrúar 2015. Senda skal umsagnir eða ábendingar til skipulagsstjóra Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.$line$Lýsingin er aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is og í þjónustuveri Garðabæjar að Garðatorgi 7.$line$Almennur kynningarfundur verður haldinn í Flataskóla miðvikudaginn 14.janúar og hefst hann klukkan 17.30. Þar verður lýsingin og innihald hennar kynnt almenningi.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 4.desember 2014 tillögu að lýsingu gerðar Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr 123/2010.$line$Í samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr 123/2010 og gr. 4.2.4. í Skipulagsreglugerð nr.90/2013 er lýsingin nú kynnt almenningi og umsagnaraðilum. $line$$line$Lagt fram.