Beint í efni

20. fundur

15.06.2012
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

20. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

15.06.2012

Kl. 12:00 - 13:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - Formaður
  • Elín Birna Guðmundsdóttir - Aðalmaður
  • Sigurður Bjarnason - Aðalmaður
  • Victor Ingi Olsen - Varamaður
  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1209302

01

Ferðastyrkir vegna landsliðsferða

Samþykktir voru styrkir að fjárhæð kr. 20.000,- hver til eftirtalinna einstaklinga:
a. Dagur Kári Jónsson, kt. 150295 4169 - karfa EM 18 ára í Sarajevo 8. - 20. ágúst 2012
b. Róbert Karl Hlöðversson, kt. 121078 3929 - blak, EM á Möltu 22.05.12 - 28.05.12
c. Gunnar Kolbeinn Kristinsson, kt, 280488 2249 - hnefaleikar. NM í Stokkhólmi, Svíþjóð 23 mars 2012
d. Gunnar Kolbeinn Kristinsson, kt, 280488 2249 - hnefaleikar. Undankeppni Ólympíuleikana í Hnefaleikum, Trabzon, Tyrklandi 12. apríl 2012

Málsnúmer 1210141

02

Styrkbeiðnir

a. Umsókn um rekstrarstyrk fyrir Kraftlyftingafélag Garðabæjar Heiðrúnu i. Samþykkt að veita styrk að fjárhæð kr. 100.000,-
b. Umsókn um rekstrarstyrk fyrir Júdófélag Garðabæjar i. Samþykkt að veita styrk að fjárhæð kr. 100.000,-

Málsnúmer 1110248

03

Tekið fyrir erindi frá bæjarráði

a. Á fundi bæjarráðs þann 12. júní sl. var tekið fyrir bréf verkefnastjórnar um aðgerðir gegn einelti varðandi baráttudag gegn einelti, dags. 1.júní 2012.
i. Samþykkt að senda bréf á félög í Garðabæ og minna á ”þjóðarsáttmála um baráttu gegn einelti“. Litið er á einelti sem ofbeldi sem unnið skal gegn með öllum ráðum.

Málsnúmer 1206175

04

Sandblakvöllur

a. Ósk hefur komið um að settir verði upp sandvellir á almenningsíþróttasvæði þar sem hægt er að spila blak, handbolta og fótbolta.
i. Íþróttafulltrúa var falið að skoða málið varðandi kostnað og staðsetningu

Málsnúmer 1210123

05

Dagskrá 17. júní

Rætt um að fara yfir dagskrá með framkvæmdaraðila um leið og verkefninu er úthlutað á hverju ári.

Málsnúmer 1210142

06

Frístundabíll

ÍTG samþykkir að beina því til bæjarráðs að halda áfram akstri Frístundabíls í Garðabæ næsta skólaár. Jafnframt að kannaðir verði möguleikar og kostnaður við sumarakstur milli íþróttasvæða sumarið 2013.

Málsnúmer 1210123

07

Önnur mál

a. Íþróttafulltrúi sagði frá fundi sem hann átti með Grunnstoð vegna íþróttamála í Garðabæ.
b. Kynnt var ábending frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu um endurútgáfu rits um ”Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga“.