Beint í efni

39. fundur

18.04.2018
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

39. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

18.04.2018

Kl. 17:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
  • Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1610199

01

Stjarnan samstarfssamningur 2017

Framkvæmdastjóri Stjörnunnar gerir grein fyrir þróunarstarfi barna og unglingastarfs skv. samstarfssamningi Stjörnunnar við Garðabæ.

Framkvæmdastjóri Stjörnunnar Ása Inga Þorsteinsdóttir gerði grein fyrir þróunarstarfi barna og unglingastarfs skv. samstarfssamningi Stjörnunnar við Garðabæ.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1804206

02

Dagskrá 17. júní 2018

Fulltrúi skátafélagsins Vífils mætir til að fara yfir drög að dagskrá 17. júní og staðsetningu hátíðardagskrárinnar.

Hafdís Bára Kristmundsdóttir skátaforingi skátafélagsins Vífils og Thelma Rún van Erven viðburðastjóri 17. júní hátíðarhaldanna, fóru yfir drög að dagskrá 17. júní og staðsetningu hátíðardagskrárinnar. Megindagskráin verður að þessu sinni á Garðatorgi.

Daginn áður verður settur upp stór skjár og stórt leiksvið á Garðatorgi í tilefni opnunarleiks Íslands á HM í Rússlandi.

Nánari drög að dagskrá kemur frá Vífli á næstu vikum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1804101

03

TUFF námskeið fyrir börn

Verkefni fyrir börn og unglinga af erlendum uppruna.

Verkefnið var kynnt en það er leitt af Hrund Hafsteinsdóttur. Samþykkt var að skoða með hvaða hætti væri hægt að ná til barna og unglinga í Garðabæ gegnum þetta verkefni.

Verkefnið hefur þegar verið áframsent á stærstu félögin í bænum.

Málsnúmer 1704121

04

Ungt fólk og lýðræði 2017 - Ályktun ráðstefnu

Ályktanir ráðstefnunnar voru kynntar á fundi ÍTG.

Ráðið tekur undir mikilvægi þess að efla rannsóknir á líðan og lífsstíl ungmenna 18 til 25 ára.

Málsnúmer 1705048

05

Tillaga um að ráðstafa arði frá Lánasjóði sveitarfélaga til forvarnarmála

ÍTG fagnar þessari tillögu og bendir á nokkur mikilvæg verkefni sem hægt er að beina meiri athygli að s.s. hjólakraftur, Klókir Krakkar (Cool Kids Program) sem er meðferðarúrræði, og heilsueflandi samfélag í Garðabæ sem nú er verið að hleypa af stokkunum.

Önnur mál.
a) Greint frá því að bæjarstjóri Garðabæjar og landlæknir munu undirrita samning um þátttöku Garðabæjar í verkefninu Heilsueflandi samfélag á sumardaginn fyrsta.
b) Gengið um sundlaugina og aðstæður skoðaðar en sundlaugin hefur nú staðist úttektir og verður opnuð að nýju á sumardaginn fyrsta.