16. fundur
16. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
06.09.2012
Kl. 16:30 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Lúðvík Örn Steinarsson - Formaður
- Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir - Aðalmaður
- Heimir Erlingsson - Aðalmaður
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - Aðalmaður
- Ásdís Magnúsdóttir - Aðalmaður
- Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
- Ída Björg Unnarsdóttir - fulltrúi starfsmanna
- Hafdís Guðný Jakobsdóttir - fulltrúi dagforeldra
- Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
- Katrín Sæland Einarsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
Ritari
- Anna Magnea Hreinsdóttir
Dagskrá
01
Beiðni um flutning á starfsdegi
Erindi Hjallastefnunnar um flutning á starfsdegi fyrir leikskólann Ása,Litlu Ása og leikskóladeild Barnaskóla Hjallastefnu samþykkt með fyrirvara um víðtækt samráð við foreldra. Óskar nefndin eftir upplýsingum um hvernig staðið er að samráði.
02
Flutningur á starfsdögum
Erindi Hæðarbóls um flutning á starfsdögum
Erindi Hæðarbóls um flutning á starfsdegi samþykkt með fyrirvara um víðtækt samráð við foreldra. Óskar nefndin eftir upplýsingum um hvernig staðið er að samráði.
03
Kennsla fimm ára barna
Erindi skólastjóra Flataskóla um stofnun leikskóladeildar fyrir 5 ára börn
Leikskólanefnd fagnar aukinni fjölbreytni í skólastarfi fyrir leikskólabörn í Garðabæ. Nefndin samþykkir leikskóladeild fyrir 5 ára í Flataskóla enda verði stefnt að því að í Flataskóla verði samrekstur leik- og grunnskóla, þ.e. fyrir börn á aldrinum 18 mánaða til 7. bekkjar. Huga þurfi að þarfagreiningu á húsnæði og lóð fyrir yngri börn.
04
Umsókn um endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Endurnýjun á leyfi til daggæslu eins barns
Ragnheiður Friðjónsdóttir kt. 280444-2279 fær endurnýjun á leyfi til gæslu eins barns til eins árs.
05
Dagur gegn einelti
Erindi vísað frá bæjarráði dags 12. júní 2012
Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti kynntur og ræddur.
06
Framlag með 5 ára börnum í Barnaskóla Hjallastefnunnar
Erindi Hjallastefnu um hækkun á framlagi
Erindi Hjallastefnu rætt. Leikskólanefnd mælir með því að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013 verði endurnýjaðar viðmiðunarreglur Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna leikskóladvalar utan lögheimilissveitarfélags hafðar til hliðsjónar.
07
Heimspekileg samræða í leik og grunnskólum lokaskýrsla
Lokaskýrsla send frá bæjarráði til umfjöllunar nefndarinnar um áframhald verkefnisins
Leikskólanefnd telur um þarft verkefni að ræða og mikilvægt að halda því áfram.
08
Kynningar og önnur mál 2012
Katrín S. Einarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra lætur nú af störfum sem fulltrúi þeirra eftir 6 ára setu. Varamaður hennar Kristín Sigurbergsdóttir leikskólastjóri tekur við. Katrínu eru þökkuð vel unnin störf.