3. fundur
3. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
08.11.2022
Kl. 16:30 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - formaður
- Haukur Þór Hauksson - aðalmaður
- Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
- Finnur Jónsson - aðalmaður
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Björg Helga Geirsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Guðrún Viktoría Skjaldardóttir - varafulltrúi starfsmanna
- Eydís Sigurðardóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun 2023
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kynnti vinnuferla við gerð fjárhagsáætlunar, stöðu vinnunnar og næstu skref.
02
Menningarviðburðir fyrir skólahópa skólaárið 2022-2023
Ólöf Breiðfjörð, menningarfulltrúi Garðabæjar sagði frá menningarviðburðum sem nemendum í skólum bæjarins verður boðið upp á, skólaárið 2022-2023. Leikskólanefndin lýsir ánægju sinni með metnaðarfulla dagskrá.
03
Starfsáætlanir leikskóla 2022-2023
Starfsáætlanir leikskóla lagðar fram til kynningar og umræðu.
04
Menntadagurinn 2022
Farið yfir Menntadaginn 2022 sem haldinn var í Hofsstaðaskóla fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla og frístundaheimila. Starfsfólki skólanna gafst kostur á að taka þátt í 20 málstofum þar sem kynntar voru helstu niðurstöður þeirra verkefna sem hlotið hafa styrk m.a. úr þróunarsjóði undanfarin ár.
05
Forvarnarvika Garðabæjar 2022
Farið var yfir forvarnarvikuna í Garðabæ sem haldin var 5.-12. október. Unnið var með hugtökin farsæld, foreldrahlutverk og samvera. Leikskólanefnd lýsir ánægju sinni með fjölbreytt og áhugaverð verkefni vikunnar.