13. fundur
13. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
01.11.2023
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - formaður
- Haukur Þór Hauksson - aðalmaður
- Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
- Finnur Jónsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Kristín Hemmert Sigurðardóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Guðrún Viktoría Skjaldardóttir - fulltrúi starfsmanna
- Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
- Sandra Hrönn Traustadóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Hanna Halldóra Leifsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2310592
01
Innra mat skóla - kynnng á Bravo lesson.
Vilborg Einarsdóttir framkvæmdastjóri kynnti gæðakerfið Bravo lesson og fór yfir innleiðingarferli Mennntastefnu Garðabæjar í leik- og í grunnskólum Garðabæjar. Kerfið auðveldar innra mat, býður upp á gerð umbótáætlana og markvisst kennslustundarýni. Tölfræði býður upp á skólaprófil hvers skóla og sýnir styrkleika og tækifæri til umbóta í skólastarfinu.
Málsnúmer 2310593
02
Menningarviðburðir í grunn- og leikskólum 2023-2024.
Ólöf Breiðfjörð, menningarfulltrui Garðabæjar sagði frá menningarviðburðum sem nemendum í skólum bæjarins verður boðið upp á, skólaárið 2023-2024. Skólanefndir lýsa ánægju sinni með metnaðarfulla dagskrá.
Málsnúmer 2308597
03
Menntadagurinn 2023.
Farið var yfir Menntadaginn 2023 sem haldinn var í Álftanesskóla fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla og frístundaheimila. Að þessu sinni var dagurinn með breyttu sniði en boðið var upp á tvo fyrirlestra og starfsfólk valdi sér eina málstofu. Í boði voru 19 málstofur þar sem kynntar vour helstu niðurstöður þeirra verkefna sem hlotið hafa styrk úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla. Leik- og grunnskólanefndir fela fræðsluskrifstofu að gera könnun meðal starfsfólks varðandi Menntadaginn.