11. fundur
11. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
20.11.2019
Kl. 08:30 - 10:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Valborg Ösp Á. Warén - aðalmaður
Starfsmenn
- Halldóra Pétursdóttir - verkefnastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Sigurborg K Kristjánsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- María Jónsdóttir - fulltrúi foreldra
- Elín Ósk Þorsteinsdóttir - fulltrúi starfsmanna
Ritari
- Halldóra Pétursdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1910300
01
Starfsáætlanir leikskóla 2019- 2020
Lagt fram til umfjöllunar. Nefndin þakkar fyrir vel framsettar starfsáætlanir.
Málsnúmer 1911235
02
Áheyrnarfulltrúar í leikskólanefnd
Lagt fram til upplýsinga.
Bókun Guðlaugs Kristmundssonar fulltrúi Garðabæjarlistans.
Vegna uppákomu á síðasta leikskólanefndarfundi tel ég nauðsynlegt að bóka hér upplifun mína á þeim samskiptum og trúnaðarbresti sem átti sér stað á þeim fundi til þess að við drögum af því lærdóm.
Ferðalag mitt að komast að fyrirkomulagi um áheyrnarfulltrúa leikskólanefndar Garðabæjar hófst þann 16. maí síðastliðinn þegar formaður nefndarinnar tilkynnir okkur eftir formlegri dagskrá lauk að við fengjum nýja áheyrnarfulltrúa að nefndinni á næsta fundi. Því gæfist okkur tækifæri á að kveðja áheyrnarfulltrúana eftir veturinn. Þetta voru áheyrnarfulltrúar skólastjórnenda, starfsmanna, dagforeldra og foreldra. Ég óskaði eftir því að nefndinni yrði kynnt fyrirkomulag áheyrnarfulltrúanna ásamt upplýsingum um það hvernig og hvenær það var ákveðið.
Þann 11. september er boðað til fyrsta fundar vetrarins með nýjum áheyrnarfulltrúum en án áheyrnarfulltrúa dagforeldra. Fjarvera áheyrnarfulltrúa dagforeldra kom upp í óformlegu spjalli. Sú breyting að boða ekki lengur áheyrnarfulltrúa dagforeldra var ekki tekin af nefndinni og það hefur aldrei farið fram umræða um breytingar á fyrirkomulagi áheyrnarfulltrúa þar. Í lok þessa fundar var ítrekuð beiðni um að fyrirkomulag áheyrnarfulltrúa yrði tekið fyrir og kynnt á næsta fundi.
Á næsta fundi, 23. október, var málið tekið fyrir og nokkur umræða átti sér stað. Ég tel tel að það hafi ekki verið neinn ágreiningur um fyrirkomulag eða tilgang áheyrnarfulltrúa, allir voru sammála um að það væri mikilvægt að hafa gott samtal við skólastjórnendur, starfsmenn og foreldra. Á þessum fundi kemur fram í fyrsta skipti útskýringin að áheyrnarfulltrúar gangi á milli leikskóla í stafrófsröð þeirra. Mér er það fram að þessum fundi óljóst hvernig fyrirkomulaginu var komið á.
Þegar þarna er komið lítur málið þannig út fyrir mér að formaður nefndarinnar og starfsmaður bæjarins taki geðþótta ákvarðanir um áheyrnarfulltrúa nefndarinnar. Þegar formaður nefndarinnar tilkynnir nefndinni í upphafi vetrar að áheyrnarfulltrúi dagforeldra mæti ekki oftar því þess þurfi ekki samkvæmt lögum velti ég fyrir mér hvort hún hafi til þess vald eða hvaða nefnd hafi mögulega tekið ákvörðun um áheyrnarfulltrúa dagforeldra upphaflega. Í sömu lögum er vísað til þess að í sveitarfélagi þar sem fleiri en einn leikskóli starfi velji foreldravettvangur (svæðisráð) sér sinn áheyrnarfulltrúa í leikskólanefndinni en áheyrnarfulltrúar foreldra hafa fengið símtal frá starfsmanni bæjarins um áheyrnarsetu sína fyrir þennan vetur því foreldrið sé í ákveðnum leikskóla.
Í lok þessarar umræðu tilkynni ég um bókun mína og vísa til þess að það þurfi að vera skýrar leikreglur. Ég vilji sjá lýðræðislega og gagnsæja aðkomu áheyrnarfulltrúanna meðal annars með því að vera með aðgengilegt og skýrt fyrirkomulag. Ég legg til í þeirri bókun að foreldravettvangur foreldra leikskólabarna verði komið á fót, svipuðum Grunnstoðum. Slíkur vettvangur gæti bæði orðið vettvangur til samtals meðal foreldra leikskólabarna í Garðabæ og á sama tíma vettvangur til vals á áheyrnarfulltrúum foreldra leikskólabarna.
Viðbrögð starfsmanns bæjarins og formanns nefndarinnar voru svo ýkt og á þann veg að mér fannst óljóst hver væri í hvaða hlutverki. Starfsmaður bæjarins beinir máli sínu strax til meirihluta og segir orðrétt “núna legg ég til að við bókum á móti?. Þarna æsast umræðurnar og formaður virðist taka hugmyndir mínar og mjög almennt orðaða bókun um lýðræðisleg vinnubrögð og gagnsæi sem persónulegri árás. Á sama tíma er ég sjálfur að upplifa trúnaðarbrest milli mín og starfsmanns bæjarins sem greinilega telur sig vinna beint fyrir formann eða meirihluta nefndarinnar. Til þess að það yrði fundarhæft á ný og róa stemninguna dreg ég bókunina mína til baka að gefnu því loforði að nefndinni verði kynnt skriflegt fyrirkomulag áheyrnarfulltrúanna á næsta fundi.
Ég hefði frekar átt von á því að heyra óformlega frá formanni nefndarinnar vegna uppákomunnar í kjölfarið eða í starfsmanni bæjarins þar sem trúnaðarbresturinn yrði ræddur. Ég fékk hinsvegar tölvupóst frá starfsmanni bæjarins þar sem lagt er til að taka umræðu um áheyrnarfulltrúa upp aftur á næsta fundi til þess að vinna að sameiginlegri bókun. Ég vissi ekki að starfsmenn bæjarins hefði mikla þörf til þess að bóka á nefndarfundum.
Að lokum vil ég minna á að Garðabær setti sér fyrst allra sveitarfélaga lýðræðisstefnu árið 2010. Eitt af markmiðum stefnunnar er að stjórnmálamenn og stjórnsýsla Garðabæjar fái viðeigandi þjálfun til þess að leiða lýðræðisferla. En þrátt fyrir að bráðum eru 40% af kjörtímabilinu lokið þá hefur nefndarfulltrúum ekki enn verið boðið á námskeið þrátt fyrir að slíkt skuli gerast í upphafi kjörtímabilsins. Starfsfólk stjórnsýslunnar á að fá menntun og þjálfun til þess að verða nefndarmönnum til ráðgjafar samkvæmt lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Trúnaðarbrestur getur átt sér stað milli nefndarmanna og starfsmanns þegar lýðræðisstefnunni er ekki framfylgt og starfsmaður fái menntun og þjálfun til þess að vera nefndarfólki til ráðgjafar eins og mælt er fyrir um í lýðræðisstefnu bæjarins.
Fyrir sex mánuðum vildi ég kynnast fyrirkomulagi áheyrnarfulltrúa leikskólanefndarinnar. Þeirri vegferð er núna lokið.
Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Meirihlutinn tekur undir sjónarmið um nauðsyn gagnsærra og lýðræðislegra vinnubragða en telur að bókun minnihlutans sé að hluta til byggð á misskilningi. Fyrirkomulag áheyrnarfulltrúa var kynnt munnlega af leikskólafulltrúa við upphaf kjörtímabils og aftur við fyrirspurn fulltrúa Garðabæjarlistans í vor. Auk þess lýsir meirihlutinn yfir óánægju með að minnihlutinn bóki gagnvart starfsmanni nefndarinnar. Eðlilegra hefði verið að bera upp kvörtun við starfsmanninn sjálfan eða yfirmann hans. Meirihlutinn ber fullt traust til starfsmanns nefndarinnar sem hefur unnið að heilindum fyrir leikskólastigið í Garðabæ. Það er vilji meirihlutans að störf nefndarinnar fari fram á faglegum og opnum grundvelli og því þykir meirihlutanum leitt að upplifun fulltrúans sé með þessum hætti. Það er okkar von að samstarf nefndarinnar til framtíðar fari ekki fram í gegnum bókanir heldur á umræðugrundvelli eins og tíðkast hefur.
Verkefnisstjóri skóladeildar vill koma eftirfarandi athugasemd á framfæri.
Ef það er mat minnihlutans í leikskólanefnd að ég hafi blandað mér með óeðlilegum hætti í umræður á síðasta leikskólanefndarfundi þá finnst mér það miður. Ég árétta að ég hef og mun starfa sem hlutlaus aðili fyrir nefndina.
Það er mikilvægt að verkefnastjóri hafi fullt traust nefndarmanna og ég vona að það svo megi verða í framtíðinni.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911234
03
Flutningur á skipulagsdegi
Leikskólanefnd samþykkir beiðni leikskólastjóra Sunnuhvols um að færa skipulagsdag sem fyrirhugaður er 21. febrúar 2020 til miðvikudagsins 22. apríl 2020 vegna fyrirhugaðar námsferðar starfsfólks til Bristol.