1. fundur
1. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
06.09.2022
Kl. 16:30 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - formaður
- Haukur Þór Hauksson - aðalmaður
- Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
- Finnur Jónsson - aðalmaður
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Halldóra Pétursdóttir - leikskólafulltrúi
- Björg Helga Geirsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Ásta Möller Sívertsen - fulltrúi starfsmanna
- Eydís Sigurðardóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Halldóra Pétursdóttir
Dagskrá
01
Heimsókn í Urriðaból
Leikskólanefnd heimsótti Urriðaból þar sem að rekstraraðilar tóku á móti þeim og fóru yfir stöðu framkvæmda.
02
Starfshættir nefnda
Formaður leikskólanefndar fór yfir starfshætti nefnda og gerði grein fyrir hlutverki þeirra er í nefndinni sitja.
03
Þagnaryfirlýsingar
Starfsfmenn nefndarinnar minntir á að skrifa undir þagnaryfirlýsingar sem liggja fyrir til undirritunar.
04
Innritun í leikskóla 2022
Fjallað um innritun í leikskóla og stöðuna í dag með hliðsjón af minnisblaði bæjarráðs dagsett 15.08´22.
05
Tilfærsla á skipulagsdegi
Leikskólanefnd leggur til við Hjallastefnuna að hún flytji skráðan skipulagsdag þann 20. september til 7. október og haldi skipulagsdegi 28. október óbreyttum vegna Menntadags. Leikskólanefnd leggur til að beiðnir um tilfærslu á skipulagsdögum liggi fyrir þegar skóladagatal er samþykkt.
06
Tilfærsla á skipulagsdegi
Beiðni Urriðaholtsskóla um tilfærsla á skipulagsdegi 20. september til 3. október er samþykkt. Leikskólanefnd leggur til að beiðnir um tilfærslu á skipulagsdögum liggi fyrir þegar skóladagatal er samþykkt.
07
Tilfærsla á skipulagsdegi
Beiðni Bæjarbóls um tilfærslu á skipulagsdegi 11. janúar '23 til 19. Apríl '23 er samþykkt. Leikskólanefnd leggur til að beiðnir um tilfærslu á skipulagsdögum liggi fyrir þegar skóladagatal er samþykkt.
08
Könnun á kynjajafnrétti, starfsþróun og símenntun
Skýrsla um könnun á kynjajafnrétti, starfsþróun og símenntun lögð fram til kynningar.
09
Ákall til sveitarstjórna um allt land - MENNTUN TIL SJÁLFBÆRNI.
Ákall um menntun til sjálfbærni lagt fram til kynningar.
10
Drög að reglugerð um tengiliði og málstjóra í samráðsgátt stjórnvalda
Drög lögð fram til kynnngar.
11
Skipulag funda leikskólanefndar
Lagt var fram skipulag funda í leikskólanefnd fyrir starfsárið 2022 - 2023.