Beint í efni

34. fundur

17.05.2022
Leikskólanefnd Garðabæjar

34. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

17.05.2022

Kl. 17:30 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
  • María Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Valborg Ösp Á. Warén - aðalmaður

Starfsmenn

  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Halldóra Pétursdóttir - leikskólafulltrúi
  • Hjördís Guðrún Ólafsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
  • Guðrún Svava Hlöðversdóttir - varafulltrúi starfsmanna
  • Linda Guðmundsdóttir Lyngmo - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Halldóra Pétursdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2205271

01

Farið yfir helstu verkefni síðasta kjörtímabils

Farið var yfir helstu verkefni síðasta kjörtímabils. Á yfirstandandi kjörtímabili hefur margt verið gert, Menntastefna Garðabæjar var endurskoðuð og gefin út. Nýr leikskóli var hannaður og skipulagður í Urriðaholti, hann hefur hlotið nafnið Urriðaból og mun verða opnaður 2023. Fjölbreytt samstarf var við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og leikskóla í bænum. Á Vífilsstöðum var opnaður leikskóli við hlið Sunnuhvols sem fékk nafnið Mánahvoll. Leikskólabörnum í bænum fjölgaði um1.476 á kjörtímabilinu. Sérverkefnasjóðurinn var endurreistur í nýrri mynd með nýjum reglum. Úthlutað var úr Þróunarsjóði til margra öflugra verkefna sem hlotið hafa áframhaldandi velgengni. Leikskólanefnd hélt 34 fundi á kjörtímabilinu þar af of marga fjarfundi að mati nefndarinnar en það kom til vegna covid. Starfsfólki leikskólanna verður seint þakkað hve vel þau stóðu vaktina á krefjandi covid tímum. Áskoranir hafa verið að laða að starfsfólk og ráðist var í öfluga auglýsinga- og kynningar herferð haustið 2021. Unnið var að ýmsum endurbótum á eldra skólahúsnæði. Settur var hiti í gólf á yngribarnadeildir en nú er það í öllum leikskólum bæjarins ásamt því að endurbætur voru á lóðum á nokkrum leikskólum. Garðabær hefur stutt við nám verðandi leikskólakennara undanfarin ár. Nefndin vill þakka Halldóru Pétursdóttur, leikskólafulltrúa og starfmanni nefndarinnar, kærlega fyrir samstarfið. Reynsla hennar og þekking studdi vel við umræður í nefndinni. Eiríki Birni Björgvinssyni sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs sem kom nýr til starfa á kjörtímabilinu þökkum við einnig kærlega fyrir samstarfið á kjörtímabilinu. Nefndin vill veg leikskólans sem mestan í framtíðinni og þakkar tækifærið að hafa komið að umræðum um leikskólastarf í Garðabæ á þessu kjörtímabili.