Beint í efni

31. fundur

27.05.2025
Leikskólanefnd Garðabæjar

31. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í leikskólanum Krakkakoti

27.05.2025

Kl. 15:30 - 17:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Margrét Bjarnadóttir - formaður
  • Haukur Þór Hauksson - aðalmaður
  • Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
  • Finnur Jónsson - aðalmaður
  • Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Jónína Guðrún Brynjólfsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
  • Agnes Ólöf Pétursdóttir - fulltrúi starfsmanna
  • Árdís Ethel Hrafnsdóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Hanna Halldóra Leifsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2505186

01

Skóladagatal leik- og grunnskóla 2026-2027

Tillaga að skóladagatali leikskóla 2026-2027

Tillaga að leikskóladagatali fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram og samþykkt.

Málsnúmer 2505184

02

Erindi frá MMS - Birting námsefnis sem styrkt hefur verið af Þróunarsjóði leik- og grunnskóla

Leikskólanefnd samþykkir beiðni frá Miðstöð menntunar og skólaþróunar um að birta og vekja athygli á því námsefni sem unnið hefur verið með styrkjum úr Þróunarsjóði leikskóla að því tilskyldu að fram komi að verkefnin séu styrkt úr Þróunarsjóði leikskóla Garðabæjar og höfunda verkefna sé getið.

Málsnúmer 2503165

03

Innritun í leikskóla 2025

Leikskólanefnd lýsir yfir mikilli ánægju með stöðu innritunar í leikskóla Garðabæjar fyrir haustið 2025.

Málsnúmer 2505417

04

Heimsókn leikskólanefndar í Krakkakot

Leikskólanefnd þakkar stjórnendum Krakkakots, Ragnhildi Gunnlaugsdóttir og Lauru Jakobsdóttur kærlega fyrir móttökuna og kynningu á því góða starfi sem fram fer í Krakkakoti.