20. fundur
20. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
20.01.2021
Kl. 08:30 - 10:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Valborg Ösp Á. Warén - aðalmaður
Starfsmenn
- Halldóra Pétursdóttir - leikskólafulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Kristín Valgarðsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Benedikt D. Valdez Stefánsson - fulltrúi foreldra
- Ína Sigrún Þórðardóttir - varafulltrúi starfsmanna
Ritari
- Halldóra Pétursdóttir
Dagskrá
01
Bréf Velferðarvaktarinnar um tillögur til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðum vegna COVID-19
Leikskólanefnd var upplýst um stöðu á leikskólum með tilliti til tillagna Velferðarvaktarinnar.
02
Nýting á dvalartíma leikskólabarna
Umræður voru um styttingu vinnuvikunnar, áhrif hennar á lengd dvalartíma hjá börnum og opnunartíma leikskóla. Leikskólanefnd leggur til við bæjarstjórn að skoða opnunartíma leikskóla og dvalartíma barna með tilliti til þess að stytta seldan tíma.
03
Öryggismál í leikskólum
Rætt var um öryggisúttektir á lóðum leikskóla og eftirfylgd með þeim. Sviðsstjóra og leikskólafulltrúa var falið að kanna hve oft reglubundnar úttektir ættu sér stað og upplýsa um það á næsta fundi nefndarinnar.
04
Endurgerð menntastefnu
Leikskólanefnd var upplýst um undirbúning að endurgerð menntastefnu og tímalínuna sem verkefninu er gefin.
05
Nýr leikskóli í Urriðaholti
Formaður leikskólanefndar greindi frá undirbúningsvinnu vegna byggingar nýs leikskóla í Urriðaholti.
06
Breytingar á rekstri Urriðaholtsskóla v/fjölgunar barna
Leikskólafulltrúi veitti upplýsingar um breytingar á rekstrarumhverfi Urriðaholtsskóla næsta skólaár þar sem mikil fjölgun verður á börnum á leikskólastigi og nýr leikskóli ekki komin í notkun.