25. fundur
25. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
26.05.2021
Kl. 08:30 - 10:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Valborg Ösp Á. Warén - aðalmaður
Starfsmenn
- Halldóra Pétursdóttir - leikskólafulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Kristín Valgarðsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Benedikt D. Valdez Stefánsson - fulltrúi foreldra
- Ína Sigrún Þórðardóttir - varafulltrúi starfsmanna
Ritari
- Halldóra Pétursdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2105017
01
Reglur um innritun í leikskóla
Leikskólanefnd var upplýst um reglur og verkferla varðandi innritun í leikskóla. Nefndin leggur til að gerð verði breyting á orðalagi varðandi innritun systkina og hvenær innritun hefst á árinu. (sjá minnisblað).
Málsnúmer 2105291
02
Staða innritunar í leikskóla
Gerð var grein fyrir stöðu innritunar og hvernig áframhaldandi framkvæmdum við Sunnuhvol er háttað.
Málsnúmer 2105292
03
Rannsóknarverkefni með Háskóla Íslands
Greint var frá tveimur rannsóknarverkefnum sem leikskólar í Garðabæ vinna með Háskóla Íslands næstkomandi vetur.
Málsnúmer 2010253
04
Nýr leikskóli í Urriðaholti
Formaður leikskólanefndar upplýsti um framgang undirbúningsvinnu við nýjan leikskóla í Urriðaholti.
Málsnúmer 2001218
05
Endurgerð menntastefnu
Upplýst var um vinnu við endurgerð nýrrar menntastefnu.
Málsnúmer 2105340
06
Umsókn um tilfærsla á starfsdegi Hnoðraholt
Samþykkt beiðni Hnoðraholts um tilfærslu á starfsdegi frá 11. janúar til 25. maí 2022.
Málsnúmer 2105335
07
Umsókn um tilfærslu á starfsdegi Holtakot
Samþykkt beiðni Holtakots um tilfærslu á starfsdegi frá 11. janúar til 25. maí 2022.