Beint í efni

1. fundur

25.06.2026
Leikskólanefnd Garðabæjar

1. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

25.06.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Páll Árnason - aðalmaður
  • Eydís Sigurðardóttir - aðalmaður
  • Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
  • Rósanna Andrésdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
  • Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi

Ritari

  • Hanna Halldóra Leifsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2605110

01

Störf leikskólanefndar 2022-2026 - samantekt

Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Í framhaldi fór hann yfir starfshætti nefnda Garðabæjar, hlutverk þeirra, réttindi og skyldur nefndarmanna. Jafnframt gerði hann grein fyrir sögu leikskólastarfs í Garðabæ, hlutverki leikskólanefndar og stöðu hennar innan stjórnskipunar bæjarins. Fram kom í máli formanns að nefndin á rætur að rekja til ársins 1962, þegar æskulýðs- og leikvallanefnd Garðahrepps var stofnuð.

Leikskólafulltrúi fór því næst yfir helstu verkefni leikskólanefndar og gerði grein fyrir störfum hennar á liðnu kjörtímabili. Sérstaklega var fjallað um þær umbætur sem ráðist hefur verið í á starfsumhverfi og starfsemi leikskóla í Garðabæ. Sautján leikskólar eru starfandi í bænum og fyrirséð er að þeim muni fjölga samhliða áframhaldandi uppbyggingu nýrra hverfa.

Leikskólafulltrúi gerði einnig grein fyrir stöðu innritunar. Öllum börnum sem fædd eru í október 2025 eða fyrr hefur verið boðin leikskólavist og innritun gengur vel. Í maí 2026 eru 1.490 börn í leikskólum Garðabæjar.

Málsnúmer 2606540

02

Starfsáætlun leikskólanefndar 2026-2027

Lögð var fram tillaga að starfsáætlun leikskólanefndar fyrir starfsárið 2026?2027. Tillagan var samþykkt með hefðbundnum fyrirvara.

Samkvæmt starfsáætluninni er gert ráð fyrir að nefndin fundi að jafnaði annan miðvikudag hvers mánaðar kl. 8:00.