Beint í efni

Notendastýrð persónuleg aðstoð fyrir fatlað fólk

Málsnúmer 1210186

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

20. fundur

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir kröfu samningsaðila um viðbótargreiðslu sem er umfram það sem kveður á um í reglum Garðabæjar um NPA. Krafa um viðbótargreiðslu er sett fram fyrst og fremst til að mæta launabreytingum samkvæmt kjarasamningum. Fram kom að kröfunni hafi verið hafnað þar sem viðbótarfjármagn hafi ekki fengist en málið er til umfjöllunar hjá verkefnastjórn um NPA. Bæjarráð samþykkir með atkvæðum EÁ og PH tillögu félagsmálastjóra um að samningur verði gerður á grundvelli reglna Garðabæjar um NPA en verði endurskoðaður komi til að samþykkt verði viðbótarfjármagn vegna NPA - samninga. Ragný Þóra Guðjohnsen greiddi atkvæði með því að fallast á kröfur samningsaðila um að taka tillit til launabreytinga.