Beint í efni

Kaup á húsnæði á 3. hæð, Garðatorgi 7

Málsnúmer 1211328

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

49. fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við Reiti um kaup á húsnæðinu á 3. hæð við Garðatorg 7 þar sem nú er starfsemi Heilbrigðiseftirlitsins og er stærð þess 200 fermetrar. Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri geri tilboð í húsnæðið að fjárhæð kr. 35.250.000 og samþykkir jafnframt að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að sömu fjárhæð komi til undirritunar kaupsamnings, sbr. 1. málsl. 2. mgr. 63. gr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Kostnaðarauka skal mætt með lækkun á handbæru fé um sömu fjárhæð.