Beint í efni
Kynningar íþróttafélaga
Málsnúmer 1303345
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
29. fundur
Tennisfélag Garðabæjar og Hestamannafélagið Sprettur kynna starfsemi sína.
Eyþór Rafn Þórhallsson formaður, Þórunn Bergsdóttir gjaldkeri og Jón Axel Jónsson þjálfari TFG kynntu starfsemi félagsins sem er í húsnæði Tennishallarinnar í Kópavogi. Mikil fjölgun hefur verið í iðkendatölu barna og unglinga úr Garðabænum sem þakka má samstarfi félagsins við Garðabæ. Nú er aðstaðan orðin of þröng og stefnt að stækkun hallarinnar um 2 velli. Félagið leggur fram óskir um áframhaldandi samstarfssamning ásamt viðauka um aðstöðusköpun til næstu ára.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
<SPAN style="FONT-FAMILY: " AR-SA? mso-bidi-language: IS; mso-ansi-language: EN-US; mso-fareast-language: Roman?; New ?Times mso-fareast-font-family: 11pt; FONT-SIZE: Roman?,?serif?; Times>Sveinbjörn Sveinbjörnsson formaður og Þorvaldur Sigurðsson kynntu nýstofnaða Hestamannafélagið Sprett, sem varð til við sameiningu Andvara og Gusts, en félagið hefur aðstöðu á Kjóavöllum. Mestur kraftur er nú í framkvæmdum fyrir hið nýja félag sem er að koma sér fyrir á svæðinu. Helsti styrkur félagsins er nálægð við frábærar reiðleiðir og útivistarsvæði Heiðmerkurinnar. Nú eru 800 félagsmenn í hinu nýja félagi. Samstarfssamningar um barna og unglingastarfs Andvara rennur inn í hið nýja félag sem síðan stefnir að því að gera sína eigin samninga við sveitarfélögin á næsta ári. Sprettur mun standa fyrir rekstri tveggja reiðskóla í sumar auk íþróttastarfs, hópreiðar og hreinsunarátaks. 
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
28. fundur
Umf. Stjarnan - staða félagsins og starfsemi
Jóhann Ingimundarson, formaður Stjörnunnar og Páll Grétarsson framkvæmdastjóri komu og gerðu grein fyrir góðri rekstrarstöðu félagsins á síðasta ári. Þeir lýstu nýjum áherslum í stefnumótun félagsins sem beinist að rekstraráætlunum deilda og innra starfi. Félagið tók upp samræmdan utanyfirgalla sem minnkar verulega útgjöld foreldra og skapar meiri liðsheild í félaginu þvert á deildir. Skýrðu þeir skipulagsmál og gildi félagsins sem er: fagmennska - samvinna - gleði - árangur, skýrðu virkni og árangur af skráningarkerfið Nóra og tengingu þess við Garðabæ við úthlutun hvatapeninga. Mannvirkjamál voru rædd, rekstur, nýframkvæmdir og mikilvægi forgangsröðunar. Bílastæðavandi við Ásgarð bar á góma þar sem margir bíleigendur hafa verið sektaðir fyrir að leggja ólöglega á undanförnum vikum. Mikill gangur er í afreksstarfi deildanna sem sýnir sig í að meistaraflokkar í mörgum greinum eru að taka þátt í úrslitakeppnum alla daga vikunnar langt fram á vor. Aðalfundur Stjörnunnar verður 14. maí nk.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
27. fundur
Kynning á starfi og framtíðaráformum UMFÁ og GKG
Framkvæmdastjóri og gjaldkeri UMFÁ komu og gerðu grein fyrir starfsemi félagsins. Þeir lögðu fram drög að ársskýrslu og fóru yfir iðkendatölur. Nokkur umræða varð um aðstöðu og þá þjónustu sem félagið er með. Einnig var rætt um samstarfsmöguleika við Stjörnuna og önnur félög í Garðabæ <SPAN style="FONT-FAMILY: "Times New Roman","serif"; FONT-SIZE: 11pt; mso-fareast-font-family: "Times New Roman"; mso-ansi-language: IS; mso-fareast-language: EN-US; mso-bidi-language: AR-SA">og tóku forsvarsmenn jákvætt í samvinnu. Fram kom að með akstri Frístundabíls frá og með næsta hausti opnist fleiri möguleikar fyrir börn og ungmenni til  að nýta íþrótta- og tómstundatilboð í öllum íþróttamiðstöðvunum.
Framkvæmdastjóri og íþróttastjóri GKG komu og gerðu grein fyrir áformum og starfi félagsins. Umræða varð um skipulag svæðisins og mikilvægi þess að hafa opin og greið samskipti milli félagsins og íþróttafulltrúa Garðabæjar og ÍTG. GKG er að skila góðum rekstri og er með langmesta barna og unglingastarf allra golfklúbba á Íslandi. Auk þess er mjög öflugt afreksuppeldi innan GKG. Rætt var um mögulegt samstarf GKG við GÁ og jafnvel fleiri klúbba varðandi rekstur og íþróttastarf. Sagt var frá áformum GKG um rekstur afreksbrautar í golfi í samstarfi við FG, með æfingaaðstöðu í Kórnum í Kópavogi. Íslandsmótið í höggleik fer fram á velli GKG árið 2014 sem mun kalla á einhverjar framkvæmdir. Nú þegar er verið að ljúka malbikun allra göngustíga.