Beint í efni

Íþróttamaður (karl og kona) Garðabæjar 2013

Málsnúmer 1311533

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

36. fundur

Gengið var frá kjöri íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar 2013 og farið yfir niðurstöður vefkosningar. Samþykkt var að velja þau Jóhann Laxdal knattspyrnumann og Hörpu Þorsteinsdóttur knattspyrnukonu.$line$Lið ársins er nú valið í fyrsta sinn, það er meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu hjá Stjörnunni sem hlýtur þá vegsemd.$line$Páll Grétarsson mun hljóta viðurkenningu ÍTG fyrir langvarandi störf að íþrótta- og æskulýðsmálum í Garðabæ og á landsvísu.$line$Alls verða veittar 490 viðurkenningar og fer athöfnin fram í fimleikasalnum í Ásgarði sunnudaginn 12. janúar nk.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

35. fundur

Drög að umsögnum

ÍTG samþykkir að tilnefna átta (8) karla og átta (8) konur í kjöri íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar.$line$Kynning á þeim fer fram í Garðapóstinum nú fyrir jól og á vef Garðabæjar.$line$Eftirtaldir einstaklingar verða í kjöri.$line$Karlar$line$Alex Freyr Gunnarsson Dans DÍH$line$Birgir Leifur Hafþórsson Golf GKG$line$Dagfinnur Ari Normann Kraftlyftingar UMF Stjarnan$line$Guðmundur Sigurður Guðmundsson Handknatttleikur UMF Stjarnan$line$Hilmar Örn Jónsson Skylmingar FH$line$Jóhann Laxdal Knattspyrna UMF Stjarnan$line$Justin Christopher Shoues Körfuknattleikur UMF Stjarnan$line$Róbert Karl Hlöðversson Blak UMF Stjarnan$line$Konur $line$Björg Gunnarsdóttir Frjálsíþróttir ÍR$line$Guðrún Georgsdóttir Fimleikar UMF Stjarnan$line$Gunnhildur Kristjánsdóttir Golf GKG$line$Hanna Rún Óladóttir Dans DÍG$line$Harpa Þorsteinsdóttir Knattspyrna UMF Stjarnan$line$Hjördís Eiríksdóttir Blak UMF Stjarnan$line$Jóna Margrét Ragnarsdóttir Handknatttleikur UMF Stjarnan$line$Helga María Vilhjálmsdóttir Skíði - alpagreinar ÍR$line$$line$Samþykkt var að veita viðurkenningu fyrir störf að æskulýðs- og íþróttamálum.$line$Ákveðið var að taka upp viðurkenningu fyrir hópíþróttalið ársins.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

34. fundur

Drög að dagskrá verðlaunahátíðar

Farið var yfir drög að dagskrá verðlaunahátíðar vegna Íþróttakarls og Íþróttakonu Garðabæjar 12. janúar 2014 kl. 13:00 í fimleikasalnum í Ásgarði.$line$Dagskráin verður með hefðbundnu sniði. Kallað hefur verið eftir tilnefningum til íþróttafélaga og almennings auk sérsambanda ÍSÍ. Skilafrestur er til 10. desember á tilnefningum og upplýsingum um alla verðlaunahafa.