Virði Heiðmerkur - rannsókn
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
7. fundur
Gestur fundarins Kristín Eiríksdóttir doktorsnemi við Háskóla Íslands kynnti rannsókn sem hófst árið 2007 á virði Heiðmerkur.$line$$line$Kristínu þökkuð greinargóð kynning á áhugaverðri rannsókn þar sem markmiðið var að meta virði Heiðmerkur í sex megin verkefnum nemenda við masters og doktors námi sem voru:$line$- virði Heiðmerkur sem uppspretta neysluvatns.$line$- virði skógarins sem uppspretta kolefnisbindingar, viðarnytja og annarra afurða skógarins.$line$- virði Elliða- og Vífilsstaðavatns voru metin með ferðakostnaðaraðferð, markaðsvirði, varnarkostnaði, menntagildi og ábata vegna laxveiða.$line$- virði Heiðmerkur sem fjölnota útivistarsvæði.$line$- virði óháð notkun, eða svokallað tilvistargildi.$line$- mikilvægi líffræðilegs og jarðfræðilegs fjölbreytileika.$line$$line$Rannsóknin var samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Rannsóknarstöðvar skógræktar á Mógilsá, Skógræktarfélags Íslands, Skógræktarfélags Reykjavíkur, Veiðimálastofnunar,$line$Reykjavíkurborgar, Garðabæjar og Orkuveitu Reykjavíkur sem og Háskólans í Vermont.$line$$line$Rannsóknar niðurstöður eru væntanlegar í útgáfu bókar á næsta ári.