Beint í efni

Opnun tilboða í framkvæmdir við knattspyrnuvöll á Álftanesi

Málsnúmer 1507152

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. (1696). fundur

Lögð fram tilboð er bárust í jarðvinnu o.fl. við knattspyrnuvöll á Álftanesi.

Loftorka Reykjavík, ehf. kr. 67.870.280

SHV pípulagnir , ehf. kr. 74.657.400

Bjössi ehf. kr. 82.200.000

Rökkvi verktakar ehf. kr. 84.457.050

Kostnaðaráætlun: kr. 67.095.460

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að leita samninga við lægstbjóðanda, Loftorku Reykjavík, ehf. á grundvelli tilboðsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Lögð fram tilboð er bárust í nýtt knattspyrnugras á knattspyrnuvöll á Álftanesi.

Polytan Gmbh 1 kr. 46.927.199

Polytan Gmbh 2 kr. 44.729.759

Metatron ehf. 1 kr. 59.022.520

Metraron ehf. 2 kr. 51.305.889

Metatron ehf. 3 kr. 49.398.322

Metatron ehf. 4 kr. 50.425.916

Metatron ehf. 5 kr. 61.726.579

Metatron ehf. 6 kr. 52.268.605

Metatron ehf. 7 kr. 46.718.591

Metatron ehf. 8 kr. 41.195.240

Altis ehf. 1 kr. 50.087.362

Altis ehf. 2 kr. 56.650.149

Altis ehf. 3 kr. 51.858.416

Tvö tilboða frá Metatron nr. 5 og 8 voru frávikstilboð sem ekki koma til greina. Tilboð nr. 2 frá Polyton uppfyllir ekki kröfur verkkaupa og kemur ekki til greina.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að leita samninga við Polytan Gmbh á grundvelli tilboðs fyrirtækisins merkt nr. 1 sem metið er sem hagstæðasta tilboðið. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Fylgiskjöl