Kosning forseta bæjarstjórnar og tveggja varaforseta
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (792). fundur
Tillaga kom fram um Gunnar Val Gíslason, sem forseta bæjarstjórnar til eins árs. Tillagan samþykkt með tíu samhljóða atkvæðum.
Tillaga kom fram um Jónu Sæmundsdóttur sem 1. varaforseta. Tillagan samþykkt með tíu samhljóða atkvæðum.
Tillaga kom fram um Sigurð Guðmundsson, sem 2. varaforseta. Tillagan samþykkt með tíu samhljóða atkvæðum.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, óskaði nýjum forseta til hamingju og velfarnaðar í starfi. Sigríður Hulda þakkaði bæjarfulltrúum gott samstarf og hvatti til góðra verka sem framundan eru við að þróa og bæta samfélagið í Garðabæ.
Gunnar Valur Gíslason, tók við stjórn fundarins. Gunnar Valur þakkaði bæjarfulltrúum traustið og hvatti þá til að ræða mál í bæjarstjórn á málefnalegan hátt með hagsmuni bæjarfélagsins að leiðarljósi. Gunnar Valur þakkaði Sigríði Huldu fyrir vel unnin störf sem forseti bæjarstjórnar og þann góða tón er hún lagði áherslu á að ríkti í umræðu á fundum bæjarstjórnar.